Mál Clancy vakti mikla athygli en henni er gefið að sök að hafa myrt börnin sín þrjú árið 2023 sem voru þá fimm ára, þriggja ára og átta mánaða gömul. Hún hefur aldrei neitað því að hafa drepið börnin. Verjandi hennar hefur sagt að hún þjáist af miklum geðrænum vanda vegna fæðingarþunglyndis.
Dómari í Massachusettes hafnaði síðan beiðni hennar um að vísa málinu frá dómi. Nú er búið að ákveða að næstu réttarhöld verði í lok mars árið 2027. Ekki var tekið skýrt fram fyrir hvaða sakir Clancy yrði ákærð.
Samkvæmt BBC vilja saksóknararnir halda áfram með réttarhöld fyrir kviðdómi og sögðust verjendur skilja það svo að Clancy yrði aftur ákærð fyrir morð af ásetningi og að yfirlögðu ráði líkt og í fyrri réttarhöldunum.
Réttað var yfir henni í sumar en réttarhöldunum lauk í byrjun september án niðurstöðu. Dómarinn ómerkti réttarhöldin eftir að kviðdóminum tókst ekki að komast að sameiginlegri niðurstöðu eftir ítrekaðar tilraunir. Kviðdómurinn hafði þrisvar sinnum reynt að komast að niðurstöðu og rætt málið í sjö daga.