Opinber samfélagsmiðlasíða James Bond greindi frá tíðindunum.
Hinn fertugi Robert Pattinson mun fylgja eftir Daniel Craig sem er sá síðasti til að fara með hlutverkið og gerði það í fimm kvikmyndumm.
Tilkynningin kemur í kjölfar langs valferlis þar sem fimm leikarar voru taldir líklegastir og höfðu farið í prufur fyrir hlutverkið. Þeirra á meðal voru Josh O’Connor, Callum Turner og Jack Lowden. Nafn Pattinson hafði lengst af ekki verið í jöfnunni en það breyttist fyrr í mánuðinum þegar fregnir bárust af því að Pattinson myndi einnig fara í prufur.
Daniel Craig er sá síðasti til að fara með hlutverk spæjarans og gerði það í fimm kvikmyndum. Sú fyrsta var Casino Royale (2006) sem kom seríunni aftur á réttan kjöl eftir röð mislukkaðra mynda og sú síðasta var No Time to Die sem kom út 2021.
Á undan þeim tveimur komu Sean Conney, George Lazenby, Roger Moore, Timothy Dalton og Pierce Brosnan í hlutverkinu. Moore fór oftast með hlutverk spæjarans, alls sjö sinnum, en Connery gerði það sex sinnum auk þess sem hann fór með hlutverk spæjarans í óopinberu Bond-myndinni Never Say Never Again (1983).
Pattinson mun leika Bond í 26. kvikmyndinni um spæjara hennar hátignar (ef frá eru taldar Casino Royale (1967) og fyrrnefnd Never Say Never Again). Leikstjórinn Denis Villeneuve mun leikstýra kvikmyndinni sem verður sú fyrsta sem er framleidd af kvikmyndaverinu Amazon-MGM eftir að það keypti réttinn af Broccoli-fjölskyldunni.
Pattinson kom fyrst fram á sjónarsviðið sem Cedric Diggory í kvikmyndinni Harry Potter og eldbikarinn (2005) og varð að súperstjörnu þegar hann lék vampíruna Edward Cullen í Twilight-myndunum á árunum 2008 til 2012.
Hann hefur síðan þá byggt upp stjörnustatus sinn, fór með hlutverk Leðurblökumannsins í kvikmyndinni The Batman (2022) og hefur leikið í stórmyndunum The Odyssey og Dune: Part Three á þessu ári.
Upphaflega kom fram að framleiðendurnir væru að leita að leikara í kringum þrítugt en Pattinson varð hins vegar fertugur fyrr á árinu. Hann er þó ekki sá elsti til að leika Bond í fyrsta, Roger Moore var 45 ára þegar hann lék Bond í fyrsta skiptið í Live And Let Die (1973).