Sigmundur Davíð sagði það ekki koma að öllu leyti á óvart að Ingvar Þóroddsson, þingmaður Viðreisnar, hafi yfirgefið Viðreisn fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Er þetta annar þingmaðurinn sem segir sig úr þingflokknum á skömmum tíma, en Jón Gnarr sagði sig úr flokknum í síðasta mánuði.
„Hann hefur alllengi talað um mikilvægi þess að Viðreisn stæði við kosningaloforð sín. Ég taldi stefna í þetta um nokkurt skeið og nú er það orðið að veruleika,“ sagði hann. „Hann hefur útskýrt þetta mjög vel.“
Vaktin: Ingvar yfirgefur Viðreisn
Sjálfur sé Sigmundur þó ekki á þingmannaveiðum og segir engan þingmann hafa haft samband við sig í von um að komast í Miðflokkinn.
Sigmundur segir að staða ríkisstjórnarinnar hafi verið veik fyrir.
„Og nú er allt í upplausn,“ bætir Sigmundur við. Maður veltir fyrir sér hvort þessi staða sé orðin sú að jafnvel þótt þau vildu taka á málunum og breyta stefnu sinni þá geti þau það ekki vegna innbyrðis vandræða.“
Spurður hvort hann telji fleiri þingmenn munu yfirgefa flokkinn svarar hann: „Kannski einn í viðbót,“ en inntur eftir því hvað hann meini með því tekur hann fram: „Ég er bara að giska.“
Hann sé ekki að tala um neinn sérstakan, heldur aðeins að álykta. „Tölfræðilega er ekkert útilokað að einhver einn stökkvi yfir.“
Stjórnarandstaðan hafi styrkst með tilkomu Ingvars, sem sé klár maður og prinsippmaður, með skoðanir sem falli vel að stjórnarandstöðunni.
Hvað stöðu Viðreisnar varðar telur stjórnarandstæðingurinn fyrir bestu að formaður Viðreisnar, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fari úr utanríkisráðuneytinu.
„Fara í eitthvað ráðuneyti hér heima. Fela einhverjum öðrum að sjá um utanríkismálin af því að það er ófremdarástand á hinum ýmsu vígstöðvum,“ segir hann og vísar til yfirvofandi málaferla fyrir EFTA-dómstólnum.
Hann telur að margir þingmenn Viðreisnar séu ekki með öllu sáttir við stefnu flokksins og segir flokkinn hafa vikið frá því sem hann lagði upp með í þingkosningunum 2024.
„Ég spurði nú forsætisráðherrann, sem er reyndar ekki í Viðreisn, hvort það væru einhverjar stefnubreytingar hjá ríkisstjórninni, hvort hún myndi reyna að aðlaga sig að þessu ástandi með því að endurskoða eitthvað í sinni stefnu en það var bara þvert nei,“ segir Sigmundur.