Einn ástsælasti glæpasagnahöfundur Norðmanna, Jørn Lier Horst, gerðist á dögunum uppvís að notkun gervigreindar við skrif sex glæpasagna. Norski miðillinn Aftenposten greindi frá því í síðustu viku en blaðið hafði látið greina notkun gervigreindar í norskum metsölubókum.
Dagblaðið notaði greiningarforritið Skrivera sem leitar að einkennum gervigreindartexta og lét það skoða tíu vinsælustu bækur síðasta árs.
Niðurstaða greiningarinnar leiddi í ljós að tvær bækur báru þess merki. Báðar voru eftir Horst. Önnur bókin, sem ber nafnið Den siste saken, eða Síðasta sakamálið, sýndi sterk merki gervigreindarnotkunar eða 73%. Bókin var tilnefnd til bókmenntaverðlauna Riverton á síðasta ári.
Aftenposten ákvað þá að láta forritið skoða eldri verk eftir Horst til að ganga úr skugga um að einkennin sem það teldi vera gervigreind væru ekki einfaldlega ritstíll Horst. Athugunin leiddi aftur á móti í ljós að eldri verk hans, fyrir útbreiðslu gervigreindarnotkunar, báru engin merki þess að tæknin hefði verið notuð.
Horst hefur svarað fyrir notkunina og segist nota gervigreindina við rannsóknarvinnu og eftirvinnslu. Hann gæti þess þó vel að lokaútgáfa textans komi frá sér en ekki frá gervigreindinni.
„Vandamál ef þú segist hafa gert þetta sjálfur“
Steinþór Steingrímsson, rannsóknarlektor á íslenskusviði Árnastofnunar, segir málið vekja upp spurningar um hvort við séum tilbúin til að samþykkja að tölvur verði hluti af sköpunarferlinu, og þá hversu stór hluti það megi vera. Steinþór birti skoðanapistil um mál Horts í gær.
Hann segir einhverja rithöfunda í Noregi hafa stigið fram og sagst nota gervigreind upp að einhverju marki í ritferlinu, þótt þeir noti hana ekki til þess að skrifa endanlegan texta.
„En svo er líka bara spurning, er það í lagi? Er það ekki í lagi einmitt? Hvar liggja mörkin?“
Steinþór segir flókið að svara þeirri spurningu. Í tilfelli Horsts veki það allavega upp spurningar um hvort hann geti að fullu eignað sér verkið.
„Í mínum huga er það vandamál ef þú segist hafa gert þetta sjálfur. Þá ertu kannski svolítið að blekkja. Fólk trúir því að það sé að lesa texta eftir einhverja manneskju en er kannski að lesa texta sem er að einhverju eða miklu leyti skrifaður af vél og það er bara ekki eins spennandi. Manni finnst maður hafa verið plataður,“ segir Steinþór.
„En ef þú segir frá byrjun: Þetta er texti sem var unninn eða skrifaður að hluta til af gervigreind, er það þá kannski ekki allt í lagi? Það myndu örugglega færri lesa hann en kannski er slík notkun í lagi ef þú ert bara heiðarlegur.“
Telur ekki að íslenskir rithöfundar séu spenntir fyrir gervigreind
Hann telur almennt að íslenskir rithöfundar séu neikvæðir í garð notkunar tækninnar við skrif bóka.
„Við sáum það náttúrulega í umræðunni um, um vélþýðingar á bókum sem eru lesnar upp hjá Storytel fyrir tveimur árum síðan og ég hef ekki séð neinar vísbendingar um að þeir séu orðnir spenntari fyrir því núna, ætli það sé ekki frekar þvert á móti.“
Steinþór segir norskan prófessor hafa borið saman nýrri og eldri bækur Horts, í kjölfar umfjöllunar Aftenpostens, og greint hvað sé ólíkt með skrifunum. Í ljós hafi komið að í nýrri bókum Horts, þar sem gervigreind var notuð, eru mun fleiri nafn- og lýsingarorð en færri fornöfn og sagnir.
Textinn verði flatneskjulegri
Steinþór segir því nokkuð ljóst að gervigreindin geti sett sinn svip á þróun textaformsins ef rithöfundar fara að nota gervigreind í auknum mæli við skrif sín.
„Mig grunar að ef þetta yrði gert í miklum mæli þá yrðu textar líkari. Það yrði kannski meiri flatneskja svona heilt yfir.“
Hann segir enga sambærilega greiningu hafa verið gerða á textum hér á landi. Verkfæri sem geti gert slíkt af nákvæmni séu ekki til að honum vitandi. Það séu aftur á móti ýmsar vísbendingar sem gefi til kynna þegar gervigreind hefur verið notuð. Til dæmis séu gervigreindarsetningar almennt jafnari að lengd og gjarnan enskuskotnar.
Það séu skýr merki um að tæknin sé þegar notuð talsvert við pistlaskrif í fjölmiðlum og sömuleiðis við lokaritgerðaskrif í háskólanum. Það muni halda áfram og nokkuð ljóst að einhverjir muni prófa sig áfram með tæknina í bókmenntaheiminum.