Hinn 37 ára gamli Riner, sem fæddist á Gvadelúpeyjum, hefur enga fyrri reynslu af opinberu embætti, engan flokk á bak við sig og enn sem komið er enga stefnuskrá. Það eina sem liggur fyrir um framboð hans er yfirlýsing á samfélagsmiðlum og heimsókn á sjúkrahús í París og slagorðið La France qu'on aime sem mætti þýða sem: Frakkland sem við elskum. Fjallað er um á vef BBC.
Má ekki bjóða sig aftur fram
Frakkar ganga til kosninga eftir um hálft ár til að kjósa sér nýjan forseta. Emmanuel Macron má ekki bjóða sig aftur fram og eru frambjóðendur þegar orðnir nokkuð margir.
Á ysta hægri vængnum vonast Marine Le Pen úr Þjóðfylkingunni til að vinna loks sigur, en hún mun etja kappi við Jean-Luc Mélenchon, leiðtoga Óbugaðs Frakklands, á ysta vinstri vængnum. Riner tilkynnti um framboð sitt á mánudag og segir í frétt France24 að tilkynningu hans hafi verið vel tekið af Macron sem hafi enn ekki lýst stuðningi við neinn frambjóðenda, þar á meðal hvorugan fyrrverandi forsætisráðherra sinna sem nú eru í framboði, Édouard Philippe og Gabriel Attal.
Í frétt BBC um framboð Riner segir að hann sé einn vinsælasti þekkti einstaklingur Frakklands og tróni reglulega á toppi kannana sem sá sem best endurspegli gildi þjóðarinnar. Hann hafi sannað sig sem sigurvegari, með fimm Ólympíugull og 11 heimsmeistaratitla að baki, auk farsæls ferils í viðskiptum.
Meira en 28 milljónir hafa horft á framboðsávarp hans á Instagram og X og sögðu um 22 prósent í könnun Ifop innan sólarhrings að þau „gætu“ kosið hann.
Kallið mig fífl
„Fólk segir að ég sé fífl að vilja bjóða mig fram til forseta,“ sagði hann í ávarpi sínu.
„Er ég fífl? Ja, ef það að neita að horfa upp á Frakkland sökkva undan skuldabyrðinni, neita að horfa upp á mæður og feður bíta á jaxlinn í hvert sinn sem þau fara í vikulegu innkaupin og skjálfa af ótta þegar börnin þeirra fara út á götu … ef allt það þýðir að vera fífl, þá já, kallið mig fífl.“
Forsetakosningar fara fram í Frakklandi 18. apríl 2027 og síðari umferð 2. maí ef enginn frambjóðandi hlýtur meirihluta atkvæða.
„Hver sá sem heldur að það útiloki Riner frá framboði til Élysée-hallar að standa utan hins pólitíska innsta hrings hefur rangt fyrir sér,“ segir Guillaume Tabard hjá fjölmiðlinum Le Figaro í samtali við BBC um framboðið.