„Mér brá þegar ég sá þetta. Sem alþingismaður geri ég mér fulla grein fyrir því að ég er opinber manneskja. En þetta er mynd af mér og pabba,“ segir Sigurður Helgi í færslu þar sem hann reifar málið.
Um var að ræða greidda auglýsingu frá ónefndu fyrirtæki þar sem myndin var sjálf af þeim feðgum. Hins vegar var búið að eiga við hana með gervigreind og breyta peysum sem feðgarnir klæddust.
Sigurður Helgi segist hafa fengið Facebook til að fjarlægja myndina en það hafi tekið nokkra fyrirhöfn. Samt sem áður stendur síðan óhreyfð.
„Hvað kemur þá í veg fyrir að fyrirtækið, sem virðist vera viku gamalt og skráð erlendis, taki aðra mynd og geri nákvæmlega það sama? Og til hvers er þetta gert. Vinir mínir og kunningjar myndu eflaust renna á þær tvær grímur ef þeir sæju mig auglýsa fyrirtæki sem ég hef aldrei heyrt um. En hvað með þá sem þekkja ekki til og átta sig síður á því að eitthvað sé ekki eins og það á að vera?“ spyr hann.
Vill skoða málið betur
Sömuleiðis vakni spurningar um ábyrgð samfélagsmiðlanna sem fá greitt fyrir að birta auglýsingar sem þessar. Sigurður Helgi minnir á að þegar séu til lög um höfundarrétt, persónuvernd og markaðssetningu en þau veiti einungis ákveðna vernd.
„En hversu vel virka þau í raun þegar erlent fyrirtæki getur notað andlit okkar í auglýsingaskyni án leyfis? Hver ber ábyrgðina og hvernig á fólk að geta leitað réttar síns?“
Sigurður Helgi hyggst kynna sér málið betur í störfum sínum á Alþingi. Hann telur að skoða þurfi skýrari lög og úrræði til að vernda rétt einstaklinga og tekur til dæmis fram að Danir hafi lagt fram frumvarp sem miði að því að tryggja einstaklingum skýrari rétt yfir eigin andliti.
Hann telur að sérstaklega þurfi að líta til fyrirtækja sem reka samfélagsmiðla og hvaða ábyrgð þau hafa.
„Eigum við sjálf réttinn yfir eigin andliti, eða geta aðrir tekið það og notað að vild? Og hver ber ábyrgðina þegar það gerist?“