Alríkisdómarinn Ana Reyes, sem skipuð var í forsetatíð Joes Biden, hefur sett lögbann á hugmyndir Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að breyta almenningsgolfvelli í Washington í golfvöll ætlaðan útvöldum gestum. Golfvöllurinn hefur verið opinn almenningi og lítið rukkað fyrir aðgang.
Trump boðaði fyrirætlanir sínar í júní og sagði að á laggirnar yrði settur einn besti golfvöllur veraldar í Austur-Potomac-garðinum. Hann kvaðst dreyma um að á vellinum yrði unnt að halda helstu golfmótin eins og US Open, Ryder-bikarinn og PGA-mótaröðina.
Trump skrifaði færslu á Truth Social í október þar sem hann boðaði upphaf framkvæmda í dag, 15. nóvember, og þá yrði garðinum lokað. Samstundis hófust verkamenn handa við að fella trjágróður. Þegar hafa 430 tré verið fjarlægð.
Trump boðaði upphaflega að nýi völlurinn yrði einnig opinn almenningi. Ana Reyes úrskurðaði í dag að garðinum skyldi ekki lokað og að ekkert mætti verða af framkvæmdum við golfvöllinn.
Trump-stjórnin hefur opinberlega sagt að aðstaða fyrir almenning í Potomac-garðinum sé orðin úr sér gengin og jafnvel hættuleg almenningi og því sé nauðsynlegt að taka til hendinni. Það sagði Reyes dómari hreinan fyrirslátt og að felling trjánna væri ófyrirgefanleg aðgerð.