Tilgangur dagsins er að minnast þeirra sem hafa látist í umferðarslysum og hvetja fólk til að leiða hugann að umferðaröryggi og ábyrgð hvers og eins í umferðinni.
Í tilkynningu frá innviðaráðuneytinu segir að ljóst sé að umferðarslys hafi víðtæk áhrif í samfélaginu og snerti landsmenn alla með einum eða öðrum hætti. Í nýrri könnun Samgöngustofu hafi komið fram að rúmlega 26 prósent Íslendinga hafi misst náinn ættingja eða vin í umferðarslysi.
Sjónum minningardagsins í ár er beint að ungum vegfarendum í umferðinni og hraðakstri ungmenna. Hraðakstur er ein helsta orsök alvarlegra slysa og banaslysa meðal ungs fólks.
Ungir ökumenn eru hlutfallslega talsvert líklegri til að lenda í slysum og óhöppum en þeir eldri. Það sem kann helst að skýra þetta er að ungir ökumenn búa yfir minni reynslu og að ungmenni meta oft eigin hæfni meiri en raunhæft er.
Slysum af völdum ungra ökumanna hafi fækkað
Í tilkynningu segir að á hinn bóginn hafi ungir ökumenn, samkvæmt slysaskráningu og viðhorfskönnunum Samgöngustofu, bætt sig á síðustu árum og standi sig almennt betur í umferðinni en áður. Slysum af völdum ungra ökumanna hafi fækkað talsvert á síðustu 20 árum og slösuðum ungmennum í bifreið einnig fækkað mikið. Þessa jákvæðu þróun megi rekja til nokkurra samverkandi þátta. Þar megi nefna öflugt ökunám, auknar kröfur um öryggi ökutækja, betri öryggisráðstafanir á vegum og markvisst fræðslustarf á öllum skólastigum og í fjölmiðlum.
Mjög alvarlegar undantekningar séu þó frá þessari almennu þróun. Síðustu mánuði og misseri hafi orðið hræðileg slys sem rekja megi til hraðaksturs eða annarrar áhættuhegðunar ungra ökumanna. Samkvæmt gögnum lögreglunnar séu skýr merki um að slík áhættuhegðun hafi aukist á ný í afmörkuðum hópum.