Neytendastofa hefur sektað ferðaskrifstofuna Icelandia ehf. um 800 þúsund krónur vegna auglýsinga sem lutu að fullyrðingum um kolefnishlutlausa, sjálfbæra og umhverfisvæna starfsemi. Niðurstaða hennar er að þær séu ósannaðar og því villandi og óréttmætar gagnvart neytendum.
Í svörum Icelandia kom meðal annars fram að markmið félagsins væri að draga úr útblæstri og kolefnisjafna hluta af útblæstri frá starfsemi félagsins. Félagið kaupi meðal annars vottaðar kolefniseiningar sem það nýti til að kolefnisjafna tilteknar ferðir og kynningarefni um kolefnisjöfnun eigi eingöngu við þann hluta starfseminnar.
Neytendastofa leit svo á að fullyrðingar um kolefnishlutleysi í kynningarefni Icelandia væru almennar og óljósar og ekki studdar viðhlítandi gögnum.
„Fullyrðingarnar gefi neytendum þannig ranglega til kynna að starfsemi Icelandia væri umhverfisvæn eða hafi í það minnsta hlutlaus áhrif á umhverfið og væru þannig líklegar til að hafa áhrif á ákvörðun neytenda um að eiga viðskipti við félagið.“