Fjallað er um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu tólf.
Móðir drengs sem lést þegar bíl var ekið á ofsahraða fyrir fimmtán árum segir hraðakstur ekki slys heldur ákvörðun og sá sem sitji undir stýri beri ábyrgð. Hún segir ábyrgð foreldra mikla þegar kemur að áhættuhegðun ungmenna í umferðinni og vill að stjórnvöld þyngi viðurlög við hraðakstri. Alþjóðlegur minningardagur um þá sem hafa látið lífið í umferðarslysum fer fram í dag.
Endurkaupaáætlun Þórkötlu fyrir íbúa Grindavíkur hefur ekki fallið vel í kramið hjá fólki og telja þeir að stjórnendur félagsins skorti skilning á raunverulegum aðstæðum Grindvíkinga.
Rússnesk listakona sem dæmd var í sjö ára fangelsi fyrir að mótmæla stríðinu í Úkraínu verður sérstakur gestur Amnesty International í Hörpu í dag. Tilefnið er 25 ára afmæli herferðarinnar Þitt nafn bjargar lífi.
Greiningum á Covid-19 hefur fjölgað en tæpur helmingur þeirra 32 sem greindust með veiruna í þarsíðustu viku tengdist hópsýkingu sem upp kom á deild Landspítalans.
Til þess að unnt sé að styrkja og styðja við íslenskuna þurfa allir að leggjast á eitt enda lifi hún ekki sjálfkrafa af, gervigreind er ný áskorun sem getur haft áhrif á þróun tungumálsins. Þetta segir framkvæmdastjóri Miðeindar. Dagur íslenskrar tungu er á morgun.
Í íþróttafréttum fjöllum við um nokkur íslensk landslið sem öll eru í eldlínunni þessa dagana.