Fyrir eiga Ástrós og Adam dótturina Nóru Náð. Þá á Adam dóttur úr fyrra sambandi.
Árið hefur verið viðburðaríkt fyrir Ástrósu og Adam en þau trúlofuðu sig í apríl í Kerlingafjöllum. Þá keyptu þau sér hús í júlí.
Ástrós gerði garðinn frægan í þáttunum Allir geta dansað fyrir nokkrum árum og er einn af meðlimum LXS-áhrifavaldahópsins. Adam hefur gert það gott sem mataráhrifavaldur, var framkvæmdastjóri City Bikes og rekur fyrirtækið North Tropics sem selur ljónsmakkaduft.