Þetta þýðir að þingmenn Viðreisnar eru aftur orðnir ellefu talsins þótt tímabundið sé, en þeir hafa aðeins verið tíu frá því að Jón sagði sig úr þingflokknum og gerðist óflokksbundinn þingmaður, sem kvaðst þó enn styðja ríkisstjórnina. Gerði hann það meðal annars vegna þess að honum þótti málefni barna með fjölþættan vanda ekki hafa fengið nógu gott rými innan flokksins.
Gunnar, sem undirritaði í vikunni drengskaparheit að stjórnarskránni, starfar sem ráðgjafi á barna- og unglingageðdeild Landspítala (BUGL). Hann er með meistaragráðu í menningarfræðum og starfaði áður sem verkefnastjóri hjá tónleikahúsinu Wiener Konzerthaus í austurrísku höfuðborginni Vínarborg.
„Þessi fjölbreytta reynsla og innsýn í málefni barna og ungmenna verður dýrmætt innlegg í þingstörfin,“ segir í færslu Viðreisnar sem birtist í vikunni.