Herferðin verður sett í Hörpu klukkan fimm í dag. Bryndís Bjarnadóttir, herferðarstjóri Íslandsdeildar Amnesty International segir að átakið hefjist á sama tíma í 150 löndum.
„Þá koma yfir hundrað þúsund manns saman um allan heim og setja nafn sitt á bréf til stjórnvalda sem brjóta mannréttindi og þrýsta á um umbætur,“ segir Bryndís.
Átta mál einstaklinga víðs vegar að úr heiminum verða tekin fyrir í herferðinni að þessu sinni.
„Í ár tökum við fyrir átta einstaklinga hvaðanæva að úr heiminum sem eiga það allir sameiginlegt að sitja í fangelsi fyrir að tjá skoðanir sínar eða gagnrýna stjórnvöld í eigin landi,“ segir hún.
Stuðningurinn frá Íslandi hafði áhrif
Í tilefni afmælisins bauð Íslandsdeild Amnesty Aleksöndru Skochilenko, eða Söshu, rússneskri listakonu, til landsins. Hún verður heiðursgestur í Hörpu ásamt Agnès Callamard, aðalframkvæmdastjóra Amnesty International.
Sasha var dæmd í sjö ára fangelsi í Rússlandi fyrir að skipta út verðmiðum í matvöruverslun fyrir skilaboð gegn stríðinu í Úkraínu. Henni var sleppt úr fangelsi í umfangsmiklum fangaskiptum Rússa og Vesturlanda árið 2024.
Sasha var meðal þeirra sem Amnesty International vakti athygli á í herferðinni, Þitt nafn bjargar lífi, árið 2022.
„Við á Íslandi tókum upp hennar mál eins og aðrar deildir og hér voru skrifuð hátt í 700 bréf henni til stuðnings,“ segir Bryndís.
Um svipað leyti var málað vegglistaverk af Söshu á Kaffi Vest í Vesturbænum. Bryndís segir að baráttan hafi átt sinn þátt í því að Söshu var sleppt í fangaskiptunum.
„Það að sjá að þetta virki allt saman og mæta henni svo í eigin persónu, það er engu líkt,“ segir Bryndís.
Risastóru gulu hjarta varpað á Hörpu
Við opnun herferðarinnar verður risastóru gulu hjarta varpað á framhlið Hörpu. Gula hjartað er táknmynd herferðarinnar í ár og táknar hjartslátt mannréttindabaráttunnar þegar venjulegt fólk lætur sig örlög annarra varða, jafnvel þótt það búi víðs fjarri og sé því með öllu ókunnugt.