Þetta var síðasta keppnin undir merkjum FIRST LEGO League hér á landi en í stað hennar kemur ein stærsta alþjóðlega vélmenna- og STEM-keppni heims, World Robot Olympiad (WRO), vorið 2027 í fyrsta sinn.
Í tilkynningu frá Háskóla Íslands segir að alls hafi 21 lið frá 17 grunnskólum víðs vegar af landinu verið skráð til þátttöku í keppnina, samtals nærri 200 þátttakendur. Þema LEGO-keppninnar í ár var BIOGLOW eða lífljómi og tengdist líffræðilegri fjölbreytni og tengslum lífvera í vistkerfum. Liðin höfðu undirbúið sig fyrir keppnina undanfarnar vikur og mánuði undir leiðsögn þjálfara sinna og á þeim tíma rannsakað áskoranir sem tengjast lífríkinu, þróað eigin nýsköpunarhugmyndir og hannað og forritað LEGO-vélmenni til þátttöku í vélmennakappleik.
Liðin voru metin út frá ýmsum þáttum, eins og nýsköpunarverkefninu sem þau unnu, hönnun og þróun vélmennis og frammistöðu í vélmennakappleik auk liðsheildar. Þegar stigagjöf í einstökum þáttum keppninnar hafði verið tekin saman kom í ljós að liðið Icebreakers úr Grunnskóla Hornafjarðar varð hlutskarpast. Í viðurkenningarskyni fékk liðið forláta bikar úr LEGO-kubbum og 300 þúsund krónur í verðlaunafé. Jafnframt býðst liðinu að taka þátt í alþjóðlegum mótum FIRST® LEGO® League en keppnin nær til meira 110 landa um heim allan.
Verðlaun í einstökum flokkum fengu eftirtalin lið:
Besta hönnun og forritun vélmennis
- sæti: Flóra úr Brúarásskóla í Jökulsárhlíð á Fljótsdalshéraði
- sæti: Fat Cats úr Holtaskóla í Reykjanesbæ
- sæti: Anomalocaris Gang úr Austurbæjarskóla
Vélmennakappleikur
- sæti: Icecoders úr Grunnskóla Hornafjarðar
- sæti: Fat Cats úr Holtaskóla í Reykjanesbæ
- sæti: Flóra úr Brúarárskóla í Jökulsárhlíð á Fljótsdalshéraði
Besta liðsheildin
- sæti: Icebreakers úr Grunnskóla Hornafjarðar
- sæti: Biobeasts úr Landakotsskóla
- sæti: Stöðvíks-Bandits úr Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla
Besta nýsköpunarverkefnið
- sæti: Icecoders úr Grunnskóla Hornafjarðar
- sæti: Seiðin 7 úr Vopnafjarðarskóla
- sæti: Áttavitar úr Garðaskóla í Garðabæ
Jafningjaverðlaun: Fat Cats úr Holtaskóla í Reykjanesbæ