Konan, sem hefur hingað til verið þekkt sem „Alice“, heitir í raun Mia Latter og segist hafa átt í sambandi við Brand árið 2006, þegar hún var sextán ára en hann um þrítugt.
Latter, sem er 37 ára í dag, var meðal þolenda sem lýstu kynferðisofbeldi af hálfu Brand í rannsókn Sunday Times, Times og Channel 4 í Bretlandi árið 2023. Á þeim tíma neitaði Brand ásökununum.
Í viðtali við Sunday Times í dag segir hún að eftir að þau Brand hafi kynnst á Leicester-torgi árið 2006 hafi hún látið hann fá númerið sitt og að þau hefðu þá hafið þriggja mánaða samband.
Hún segir að það hefði meðal annars verið vegna sambands síns við Brand að henni hafi tekið að ganga verr í námi, hún hætt í skóla og glímt við þunglyndi.
Þau hafi kynnst á spænskum veitingastað og Latter hefur eftir Brand: „Mér er drullusama hversu gömul þú ert. Ég vil bara vita hvar ég stend lagalega séð.“
Samræðisaldur í Bretlandi nemur sextán árum en Latter vill nú berjast fyrir því að samræðisaldur sé hækkaður.
Latter segir að þau hafi farið heim til hans og hafi hún reynt að ýta honum frá sér er hann hafi reynt að stunda við hana munnmök í hennar óþökk. Brand hafi þá á endanum hætt en þó tekið út getnaðarlim sinn á meðan hún beið eftir að leigubíll kæmi að sækja hana.
Latter segir að Brand hafi einnig beitt sig kynferðisofbeldi skömmu áður en þau hættu saman.
„Hann endaði með því að ýta mér upp að höfðagafli [rúmsins] og ég gat ekki hreyft mig, og hann nauðgaði mér munnlega, og ég var að kafna og grét. Ég reyndi að ýta honum af mér, svo að hann vissi að ég vildi ekki að hann gerði þetta, þannig að ég endaði með því að kýla hann í magann til þess að koma honum af mér,“ segir hún.
Hún segir þá að hann hafi sagt: „Ég vildi bara sjá maskarann þinn leka niður.“
Latter upplýsti lögregluna í Bretlandi um þessa frásögn en hennar mál var þó ekki haft með í saksókn á hendur Brand þegar hann var í síðustu viku dæmdur í tíu og hálfs árs fangelsi vegna nauðgunar og kynferðisofbeldis.
Jafnframt hafa The Times birt umfjöllun í vikunni þar sem sex konur til viðbótar lýsa kynferðisofbeldi af hálfu Brand.