Árásin átti sér stað í miðborg Reykjavíkur samkvæmt dagbók lögreglunnar. Þar segir að báðir tveir hafi verið látnir gista í fangaklefa lögreglunnar.
Árásarþoli var fluttur á slysadeild með sjúkrabifreið. Engar nánari upplýsingar fylgja með tilkynningunni um líðan viðkomandi. Málið er í rannsókn.
Lögreglunni barst einnig tilkynning um umferðaróhapp á varðsvæði lögreglunnar í Kópavogi og Breiðholti. Engin slys urðu á fólki en fjarlægja þurfti ökutæki af vettvangi með kranabíl.
Að minnsta kosti tveir ökumenn voru stöðvaðir grunaðir um að aka undir áhrifum vímuefna. Í dagbók lögreglu segir að málið hafi verið afgreitt samkvæmt venju.