Saga flugslyssins á Srí Lanka sögð á sviði - Vísir

Saga flugslyssins á Srí Lanka sögð á sviði - Vísir

Saga flugslyssins á Srí Lanka sögð á sviði - Vísir

Þann 15. nóvember 1978 fórst DC-8 þota Flugleiða, Leifur Eiríksson, í aðflugi að flugvellinum við Kólombó á Srí Lanka. Um borð voru 262, flestir indónesískir pílagrímar á heimleið frá Mekka. 183 létust. Þrettán Íslendingar voru í vélinni og fimm þeirra komust lífs af.

Óttar Sveinsson rakti söguna í bókinni Útkall: Leifur Eiríksson brotlendir og á henni byggja þeir Fjölnir og Magnús leikgerðina. Magnús leikstýrir og Fjölnir er einn fimm leikara.

Óttar Sveinsson á samlestri á verkinu.María Björt Ármannsdóttir

„Ég er búinn að vera með þessa sögu í maganum í fimm, sex ár,“ segir Fjölnir.

„Þetta er náttúrulega mikill harmleikur og mjög sorglegt en saga þeirra fimm sem lifðu af er ótrúleg. Þetta var svo miklu meira en flugslysið sjálft. Það er líka það sem tók við. Þau liggja slösuð úti í skógi og svo kemur fólk sem þau halda að sé björgunarfólk en þá voru það heimamenn, sumir jafnvel klæddir sem læknar, sem rændu þau. Hálsmenum, úrum og veskjum.“

Svo stoppar hann sig af.

„Ég vil ekki segja of mikið.“

Pílagrímar og flókin aðfangakeðja

En hvað var íslensk flugvél eiginlega að gera yfir Srí Lanka?

Á þessum árum tóku Íslendingar virkan þátt í árlegu flugi pílagríma til Mekka. Vélar og áhafnir voru leigðar út til að ferja fólk frá Indónesíu, Alsír og víðar til Jedda, og þetta var orðinn árlegur liður í rekstrinum.

„Þetta hentaði bara svo vel af því að það var off-season á Íslandi. Þarna voru bæði flugvélar og starfsfólk á lausu til að fara í verkefnið,“ segir Magnús.

Íslendingar stunda þetta enn af krafti. Air Viking, Arnarflug og Flugleiðir sinntu pílagrímaflugi á sínum tíma og eftir að Arngrímur Jóhannsson og Þóra Guðmundsdóttir stofnuðu Atlanta árið 1986 varð það fljótt ein af burðarásum félagsins. 

Núna í vor voru á bilinu fimm til sex hundruð starfsmenn í árlegu pílagrímatörninni fyrir Saudia-flugfélagið. Vélar félagsins hafa undanfarin ár meðal annars flutt pílagríma heim til Indónesíu, sömu leið og Leifur Eiríksson var á.

Fjallað var um pílagrímaflug Íslendinga fyrr og nú í þáttaröðinni Flugþjóðinni á Sýn+ fyrr á árinu. Á Vísi má meðal annars lesa um flugfólkið sem þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna og pílagrímatörn Atlanta í vor.

Frá björgunaraðgerðum á Srí Lanka.Vísir

Haustið 1978 voru íslensku áhafnirnar sex og skiptust á. Pílagrímarnir sátu áfram í sömu vél en Íslendingarnir stukku inn og út í millilendingum. Leifur Eiríksson var á leið frá Jedda og í Kólombó beið áhöfn sem átti að taka við vélinni og fljúga henni áfram til Surabaya í Indónesíu. Þess vegna voru ekki allir Íslendingarnir þrettán við störf um borð. Sumir voru farþegar á leið í næsta verkefni.

Slysið er það mannskæðasta í sögu íslenskra flugfélaga en Íslendingar voru í miklum minnihluta um borð og það varð hinum megin á hnettinum. Þar kann að liggja skýringin á því að yngra fólk þekkir það varla.

„Eldri kynslóðin man vel eftir þessu. En ég er 38 ára, fæddur 88, og fólk sem er jafngamalt mér og yngra virðist ekki kannast við þessa sögu. Það er líka svolítið drifkrafturinn. Mann langar ekki að hún gleymist,“ segir Fjölnir.

Geislinn var skakkur

Vélin kom inn til lendingar í þrumuveðri og úrhelli. Flugmennirnir þurftu að reiða sig á blindflugstæki og aðflugshallageisla frá flugvellinum, sem átti að segja þeim hve langt væri í jörðina.

„Það eru einhverjar vísbendingar um að mælingarnar séu skrýtnar en auðvitað vill maður treysta þessum tækjum. Svo koma þeir út úr þrumuskýinu og sjá að þeir eru allt of lágir,“ segir Fjölnir.

Vélin brotlenti í skóglendi skammt frá flugbrautinni.

Íslendingarnir áttu sjálfir bágt með að trúa því sem hafði gerst.

„Þau hugsuðu bara: Við erum íslenskt flugfélag. Svona kemur ekkert fyrir,“ segir Fjölnir.

„Þetta er eitthvað sem gerist í útlöndum,“ skýtur undirritaður inn í.

„Þetta gerist bara í útlöndum og í bíómyndum. Þetta gerist ekki fyrir okkur.“

Fjölnir og Magnús sáu saman um leikgerðina.María Björt Ármannsdóttir

Þeir Fjölnir og Magnús taka fram að þeir vilji ekki ala á flughræðslu hjá neinum. Það sem klikkaði hafi fyrst og fremst verið tækjabúnaðurinn á flugvellinum.

„Það kemur í ljós á örlagaríkri stundu að geislinn hafi verið skakkur,“ segir Magnús.

Að sögn þeirra félaga átti að yfirfara búnaðinn á níutíu daga fresti en það hafði ekki verið gert í heilt ár, og önnur flugfélög höfðu kvartað undan því að geislinn væri ónákvæmur.

Þeir eru ekki einir um þá skoðun. Í Flugþjóðinni rifjuðu Flugleiðamenn slysið upp og töldu vanstilltan geisla hafa ráðið mestu.

Í lopapeysu í fjörutíu stiga hita

Katrín Fjeldsted, sem þá var við læknanám í Lundúnum og fór síðar á þing, var beðin um að fljúga út og hlúa að löndum sínum í Srí Lanka.

Hún hafði varla tíma til að pakka. Hún hafði heyrt af þrumum, eldingum og óveðri svo hún skellti sér í þykka lopapeysu.

„Svo kemur hún út úr vélinni og þá eru bara fjörutíu gráður. Hún lendir á hitavegg,“ segir Magnús.

„Hún var ekki lengi í þessari ullarpeysu,“ bætir Fjölnir við.

Katrín hjúkraði þeim slösuðu og kom þeim á betra sjúkrahús en þeir Fjölnir og Magnús telja að hún hafi ekki síður verið þarna til að hlusta. Hún sat samlestur með leikhópnum í Hörpu á dögunum og það gerði Óttar Sveinsson líka.

Léttara á sálina í hvert sinn

Harald Snæhólm flugstjóri var farþegi um borð, á leið að taka við annarri vél. Hann skarst í andliti, fjórir hryggjarliðir brotnuðu og óvíst var hvort hann myndi lifa. Þegar hann komst í samband við annan Íslending á spítalanum byrjaði hann strax að segja frá.

„Hann segir honum söguna, ef hann skyldi nú deyja. Þá væri hann allavega búinn að miðla henni frá sér,“ segir Fjölnir.

Oddný Björgólfsdóttir flugfreyja var sú fyrsta úr hópnum sem Fjölnir hitti til að segja frá áformunum. Hann var stressaður og hræddur við að ýfa upp gömul sár.

Katrín Fjeldsted á samlestri.María Björt Ármannsdóttir

„Ég spyr hana bara fyrst hvort henni finnist erfitt að rifja þetta upp. Þá sagði hún að það væri þvert á móti. Þetta yrði léttara á sálina í hvert einasta skipti sem hún fengi tækifæri til að tala um þetta,“ segir hann.

„Það er svolítið hjartað í sögunni. Að það sé sniðugra að tala um áföllin okkar í staðinn fyrir að byrgja þau inni.“

Þau sem lifðu af fóru aftur að fljúga skömmu eftir slysið og flugu sum út starfsævina.

Ferðatöskur í stað flugvélar

Magnús segir að það hafi ekki legið í augum uppi hvernig ætti að koma svona sögu á svið. Bók Óttars er í raun röð viðtala sem raðað er í tímaröð og þann heimildastíl ákvað hann að nýta.

„Ég sagði við Fjölni: Já, ég vil endilega gera þetta, en ég vil þá fá fimm leikara þar sem hver tekur að sér einn af þessum eftirlifendum,“ segir Magnús.

„Við erum ekki að fara að sjá neina flugvél brotlenda í einhverjum skógi á sviðinu. Ef Hollywood vill gera þá bíómynd þá má hún gera það. Við höfum ekki áhuga á því.“

Aðstandendur sýningarinnar, leikhópur, hljóðmyndarhönnuður, leikstjóri auk Óttars Sveinssonar og Katrínar Fjeldsted.María Björt Ármannsdóttir

Leikararnir stíga þess í stað inn í minningar þeirra Oddnýjar, Haralds, Þuríðar Vilhjálmsdóttur, Jónínu Sigmarsdóttur og Kristínar Kristleifsdóttur. Með Fjölni á sviðinu eru Berglind Halla Elísdóttir, Ellen Margrét Bæhrenz, Kristín Þorsteinsdóttir og Ýr Aimée Gautadóttir Presburg.

Leikmyndin er ferðatöskur sem verða að flugvélarsætum eina stundina og sjúkrarúmum þá næstu. Þeir treysta á ímyndunarafl áhorfenda og segja hlutina oft verða áhrifameiri þannig. Anna Róshildur Benediktsdóttir semur tónlistina og vinnur hana meðal annars upp úr flugvélarhljóðum sem hún afbakar og býr til hljóðgervla úr.

Ætla að koma á sýningu

Fjögur þeirra sem lifðu eru enn á lífi. Harald lést í fyrra. Flest hinna ætla að mæta á sýningu og þau sem treysta sér síður til að rifja þetta upp hafa gefið henni blessun sína.

„Við erum byrjaðir að fá skilaboð frá ókunnugu fólki sem hvetur okkur og þakkar fyrir. Það er mjög fallegt,“ segir Fjölnir.

Þeir vita að bók Óttars rúmast ekki öll í einum og hálfum tíma. Saga pílagrímanna og fjölskyldna þeirra í Indónesíu er til dæmis að mestu ósögð í sýningunni þótt hún sé nefnd.

„Við hefðum aldrei getað náð utan um upplifun allra sem koma að slysinu í einni sýningu. Það er ekki hægt, eins mikið og við værum til í það,“ segir Magnús.

Útkall verður forsýnt í Hörpu 9. desember og frumsýnt kvöldið eftir. Uppselt er á frumsýninguna en sýnt verður aftur 13. desember og þrisvar í janúar. Miðar fást á tix.is og harpa.is.

Um endinn vilja þeir sem minnst segja, annað en að von sé á gestum og að forvitnir geti rýnt í aðstandendalistann á miðasöluvefnum.

„Ég ætla bara að segja að hann verður mjög flottur,“ segir Fjölnir.

#flugslyssins #lanka #saga #srí #sögð


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262963220d/saga-flugslyssins-a-sri-lanka-sogd-a-svidi

📰 Aðrar fréttir

Niðurskurður heilbrigðisstofnana óhjákvæmilegur
📅 16.11.2026 👁️ 1
Niðurskurður heilbrigðisstofnana óhjákvæmilegur
Áætlaður rekstrarhalli heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni er 5-15 prósent. Forstjórar sex heilbrigðisstofnana, allra nema höfuðborgarsvæðisins, hafa...
Forensic expert says his analysis raises doubts about how Epstein died
📅 16.11.2026 👁️ 0
Forensic expert says his analysis raises doubts about how Epstein died
Professor Michael Freeman tells BBC Newsnight that he believes the convicted sex offender's injuries are consistent with a homicide.
Réttað aftur yfir Clancy í mars
📅 16.11.2026 👁️ 0
Réttað aftur yfir Clancy í mars
Ný réttarhöld í máli Lindsay Clancy verða haldin í Massachusetts í Bandaríkjunum í mars á næsta ári. Í september ógilti dómari réttarhöld í máli Clanc...
30 milljarða taprekstur kísilvers PCC á Bakka
📅 16.11.2026 👁️ 1
30 milljarða taprekstur kísilvers PCC á Bakka
PCC BakkiSilicon ehf., sem rekur kísilverið á Bakka á Húsavík, var rekið með rúmlega 30 milljarða tapi árið 2025. Þetta kemur fram í ársuppgjöri fyrir...
Hélt að Við­reisn væri Sjálf­stæðis­flokkur með „Evróputvisti“ - Vísir
📅 16.11.2026 👁️ 1
Hélt að Við­reisn væri Sjálf­stæðis­flokkur með „Evróputvisti“ - Vísir
Um mánuði síðar hefur Ingvar, þingmaður Norðausturkjördæmis, skipt um flokk og stokkið úr Viðreisn í Sjálfstæðisflokkinn. Ingvar segir í viðtali í Rey...
„Al­veg baga­leg vinnu­brögð“ - Vísir
📅 16.11.2026 👁️ 1
„Al­veg baga­leg vinnu­brögð“ - Vísir
Um mánuði síðar hefur Ingvar, þingmaður Norðausturkjördæmis, skipt um flokk og stokkið úr Viðreisn í Sjálfstæðisflokkinn. Ingvar segir í viðtali í Rey...
Hætti við áfrýjun og biðst afsökunar – „Ég tilheyrði heimi sem er ekki lengur til“
📅 16.11.2026 👁️ 1
Hætti við áfrýjun og biðst afsökunar – „Ég tilheyrði heimi sem er ekki lengur til“
Franski kvikmyndaleikarinn Gerard Depardieu hefur hætt við áfrýjun sína eftir kynferðisbrotadóm sinn. Þess í stað biður hann fórnarlömb sín afsökunar....
Einar berst fyrir forvörn gegn byrlunum – Missti handlegg í hræðilegu slysi á Spáni
📅 16.11.2026 👁️ 1
Einar berst fyrir forvörn gegn byrlunum – Missti handlegg í hræðilegu slysi á Spáni
Með forvarnarverkefninu Arnarskjöldur er barist fyrir því að rekstraraðilar veitingastaða, bara, hótela og viðburða og verði skyldaðir til að hafa til...
Þrýsta á Apple að ýta á hnappinn
📅 16.11.2026 👁️ 1
Þrýsta á Apple að ýta á hnappinn
Almannarómur og Íslandsstofa skora á tæknifyrirtækið Apple að innleiða íslensku í tækjum sínum. Það er eitt stærsta tæknifyrirtækið sem býður hvergi u...
As new Bond, Pattinson takes on one of film's most high-profile roles
📅 16.11.2026 👁️ 2
As new Bond, Pattinson takes on one of film's most high-profile roles
Robert Pattinson has been announced as the next James Bond, becoming the seventh actor to take up the mantle of 007.
Watch: When will we see Robert Pattinson as James Bond?
📅 16.11.2026 👁️ 0
Watch: When will we see Robert Pattinson as James Bond?
Robert Pattinson has been announced as the next James Bond, becoming the seventh actor to take up the mantle of 007.
26,5% samdráttur í sölu á sumarhúsum
📅 16.11.2026 👁️ 1
26,5% samdráttur í sölu á sumarhúsum
Allt stefnir í að sala á sumarhúsum verði sú minnsta í sex ár, segir Páll Pálsson fasteignasali, sem sækir tölur í kaupverðsjá Húsnæðis-, mannvirkja- ...
„For­maður Sjálf­stæðis­flokks að búa til upp­lýsingaóreiðu“ - Vísir
📅 16.11.2026 👁️ 1
„For­maður Sjálf­stæðis­flokks að búa til upp­lýsingaóreiðu“ - Vísir
Hann var spurður almennt um viðbrögð hjá þingflokki og svaraði því einlæglega að vonbrigði hefðu verið einkennandi. „En við erum náttúrlega í ríkisstj...
Karl og Vilhjálmur sagðir einhuga um framtíð Harry innan konungsfjölskyldunnar - „Enginn vafi á því“
📅 16.11.2026 👁️ 1
Karl og Vilhjálmur sagðir einhuga um framtíð Harry innan konungsfjölskyldunnar - „Enginn vafi á því“
Karl III Bretakonungur og Vilhjálmur Bretaprins munu vera á einu máli um framtíð yngri prinsins, Harry, og eiginkonu hans innan bresku konungsfjölskyl...
Gagnrýnir uppsagnir hjá Hafnarfjarðarbæ og spyr hvort hljóð og mynd fari saman
📅 16.11.2026 👁️ 2
Gagnrýnir uppsagnir hjá Hafnarfjarðarbæ og spyr hvort hljóð og mynd fari saman
Nýlega lagði bæjarráð Hafnarfjarðar niður 23 störf sem samsvara 21,6 stöðugildum. Þremur starfsmönnum verður boðið annað starf hjá bænum og nemur því ...
Hjóla í Ingvar eftir vistaskiptin - „Hann greiddi atkvæði í þingsal með nokkrum þeirra mála sem hann gagnrýnir nú“
📅 16.11.2026 👁️ 1
Hjóla í Ingvar eftir vistaskiptin - „Hann greiddi atkvæði í þingsal með nokkrum þeirra mála sem hann gagnrýnir nú“
Jónas Már Torfason oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi og sonur Ölmu Möller heilbrigðisráðherra og Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar gagnrýna b...
„Brostinn á flótti í stjórnar­liðinu“ - Vísir
📅 16.11.2026 👁️ 2
„Brostinn á flótti í stjórnar­liðinu“ - Vísir
Ingvar tilkynnti í færslu á Facebook í morgun að hann ætlaði að yfirgefa Viðreisn og ganga frekar í raðir Sjálfstæðismanna. Rétt rúmur mánuður er liði...
Christian Cousins er látinn - Vísir
📅 16.11.2026 👁️ 1
Christian Cousins er látinn - Vísir
Bróðir Cousins, Jonas Roeser, greindi frá andláti Cousins í síðasta mánuði en fjölmiðlar vestanhafs urðu ekki varir við tilkynninguna fyrr en í lok sí...
Næsti James Bond afhjúpaður - „Draumur að rætast“
📅 16.11.2026 👁️ 2
Næsti James Bond afhjúpaður - „Draumur að rætast“
Leikarinn Robert Pattinson, sem er hvað frægastur fyrir að hafa leikið vampíruna Edward í Twilight-þríleiknum og ofurhetjuna Batman í samnefndri kvikm...
Rétta aftur yfir Clancy á næsta ári - Vísir
📅 16.11.2026 👁️ 2
Rétta aftur yfir Clancy á næsta ári - Vísir
Mál Clancy vakti mikla athygli en henni er gefið að sök að hafa myrt börnin sín þrjú árið 2023 sem voru þá fimm ára, þriggja ára og átta mánaða gömul....
Over 8,000 illegal sexual performance products seized in the Canary Islands
📅 16.11.2026 👁️ 2
Over 8,000 illegal sexual performance products seized in the Canary Islands
The Guardia Civil has seized more than 8,000 products sold to improve sexual performance during an investigation into unauthorised supplements being s...
Enginn fundur boðaður í deilu Icelandair og flugmanna
📅 16.11.2026 👁️ 2
Enginn fundur boðaður í deilu Icelandair og flugmanna
Fundur hefur ekki verið boðaður í kjaradeilu Icelandair og flugmanna, segir Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari.Flugmenn Icelandair í Félagi íslensk...
Vilja refsa Írönum fyrir ís­skápa­stríðið - Vísir
📅 16.11.2026 👁️ 2
Vilja refsa Írönum fyrir ís­skápa­stríðið - Vísir
Ógrynni matvæla fór til spillis þegar kælar í hundruðum matvöruverslana í Frakklandi voru hitaðir í allt að fimmtíu gráður yfir nótt. Þrjótarnir sem s...
Þegar trúarsiðum og lagakerfi er ruglað saman
📅 16.11.2026 👁️ 2
Þegar trúarsiðum og lagakerfi er ruglað saman
Lilja Benatov Hjartar skrifar: Nýlega birtist á Facebook pistill sem settur var fram sem almenn fræðslugrein um sharía-lög, skrifuð sem svar við aðsen...
Annir Þor­gerðar séu auð­vitað á­skorun - Vísir
📅 16.11.2026 👁️ 2
Annir Þor­gerðar séu auð­vitað á­skorun - Vísir
Þetta sagði Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra og þingmaður Viðreisnar, í samtali við fréttamenn í ljósi þeirra tíðinda að Ingvar Þóroddsso...
Lindsay Clancy to face retrial for deaths of her three children in March 2027
📅 16.11.2026 👁️ 2
Lindsay Clancy to face retrial for deaths of her three children in March 2027
The 36-year-old's first trial this year fell apart when a 12-person jury failed to reach a verdict.
Ákærður fyrir tilraun til manndráps í leigubíl
📅 16.11.2026 👁️ 2
Ákærður fyrir tilraun til manndráps í leigubíl
Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann á fertugsaldri fyrir að hafa að kvöldi mánudagsins 13. júlí veist með vasahnífi að leigubílstjóra í Reykjavík. Í...
Street cricket with a legend and a metro ride as William and Kate begin India visit
📅 16.11.2026 👁️ 2
Street cricket with a legend and a metro ride as William and Kate begin India visit
The Prince and Princess of Wales are visiting Mumbai for the Earthshot Prize this week, but started their trip with some fun outings.
Street cricket with a legend then metro ride as William and Kate begin India visit
📅 16.11.2026 👁️ 1
Street cricket with a legend then metro ride as William and Kate begin India visit
The Prince and Princess of Wales are visiting Mumbai for the Earthshot Prize this week, but started their trip with some fun outings.
Robert Pattinson verður James Bond - Vísir
📅 16.11.2026 👁️ 2
Robert Pattinson verður James Bond - Vísir
Opinber samfélagsmiðlasíða James Bond greindi frá tíðindunum. Hinn fertugi Robert Pattinson mun fylgja eftir Daniel Craig sem er sá síðasti til að far...
Þor­gerður eigi að yfir­gefa utan­ríkis­ráðu­neytið - Vísir
📅 16.11.2026 👁️ 2
Þor­gerður eigi að yfir­gefa utan­ríkis­ráðu­neytið - Vísir
Sigmundur Davíð sagði það ekki koma að öllu leyti á óvart að Ingvar Þóroddsson, þingmaður Viðreisnar, hafi yfirgefið Viðreisn fyrir Sjálfstæðisflokkin...
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Lífsrækt – „Give Peace a Chance“ – Ábyrgðin er okkar allra
📅 16.11.2026 👁️ 5
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Lífsrækt – „Give Peace a Chance“ – Ábyrgðin er okkar allra
Engin þjóð getur verið örugg til lengdar í heimi þar sem stríð fá að geisa. Hvað ætlum við að gera til að breyta því?Við búum á undraverðri en um leið...
Breki Karlsson: Örorka þýðir ekki endilega tekjutap – tryggingar þurfa ekki að vera svona dýrar
📅 16.11.2026 👁️ 4
Breki Karlsson: Örorka þýðir ekki endilega tekjutap – tryggingar þurfa ekki að vera svona dýrar
Ísland er með allt öðruvísi reglur um örorkubætur en t.d. önnur Norðurlönd, sem veldur því að tryggingariðgjöld eru miklu hærri hér en annars staðar á...
Þorgerður Katrín leynir ekki vonbrigðunum með Ingvar
📅 16.11.2026 👁️ 4
Þorgerður Katrín leynir ekki vonbrigðunum með Ingvar
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar og utanríkisráðherra, segir að hún hafi orðið fyrir vonbrigðum þegar Ingvar Þóroddsson tilkynnti h...
Unnur hjólar í Morgunblaðið eftir frétt laugardagsins – „Þeir kosta svo mikið. Þeir eru óvinir ríkisins“
📅 16.11.2026 👁️ 4
Unnur hjólar í Morgunblaðið eftir frétt laugardagsins – „Þeir kosta svo mikið. Þeir eru óvinir ríkisins“
Unnur Hrefna Jóhannsdóttir gagnrýnir Morgunblaðið harðlega eftir umfjöllun um hækkun ríkisútgjalda til örorku og málefna fatlaðs fólks. Segir hún að b...
Gunnar Smári sendir út neyðarkall – „Ritstjóri á barmi taugaáfalls af fjárhagsáhyggjum“
📅 16.11.2026 👁️ 4
Gunnar Smári sendir út neyðarkall – „Ritstjóri á barmi taugaáfalls af fjárhagsáhyggjum“
Gunnar Smári Egilsson, ritstjóri Samstöðvarinnar, segir að vegna dráttar á greiðslu fjölmiðlastyrks standi stöðin frammi fyrir greiðsluvanda. Það hrik...
Landmark Crimea bridge hit as Russia reports biggest Ukrainian drone attack of war
📅 16.11.2026 👁️ 3
Landmark Crimea bridge hit as Russia reports biggest Ukrainian drone attack of war
Russia said Ukraine had launched over 2,000 drones over the course of a day, while Kyiv came under a record 17 air raid alerts.
Björk og Lauf­ey til­nefndar til Grammy-verðlauna - Vísir
📅 16.11.2026 👁️ 4
Björk og Lauf­ey til­nefndar til Grammy-verðlauna - Vísir
Grammy-verðlaunahátíðin fer fram sunnudaginn 7. febrúar 2027 og verður í fyrsta sinn sýnd á Disney+. Tilnefningar til verðlaunanna voru tilkynntar í d...
„Þeir hlæja oft hæst og tómast sem hafa yfir minnstu að hlæja“ - Vísir
📅 16.11.2026 👁️ 4
„Þeir hlæja oft hæst og tómast sem hafa yfir minnstu að hlæja“ - Vísir
Sigurður Ingi kom fyrst inn á þetta atriði í óundirbúnum fyrirspurnum, þá í fyrirspurn til Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra, en hann kvaddi s...
Grammys 2027: Raye leads with 11 nominations as Dolly Parton receives posthumous nods
📅 16.11.2026 👁️ 3
Grammys 2027: Raye leads with 11 nominations as Dolly Parton receives posthumous nods
British singer Raye lands 11 nominations while Dolly Parton is recognised two months after her death.
„Allt með kyrrum kjörum í Sam­fylkingunni“ - Vísir
📅 16.11.2026 👁️ 4
„Allt með kyrrum kjörum í Sam­fylkingunni“ - Vísir
„Mér finnst auðvitað leiðinlegt að sjá hann fara. Það er alltaf leiðinlegt að missa félaga en ég óska honum góðs gengis,“ sagði Kristrún Frostadóttir,...
Gunnar Smári á barmi taugaáfalls vegna fjárhagsáhyggna
📅 16.11.2026 👁️ 3
Gunnar Smári á barmi taugaáfalls vegna fjárhagsáhyggna
Gunnar Smári Egilsson, ritstjóri Samstöðvarinnar, leitar til stuðningsmanna miðilsins og biður þá um fjárhagsaðstoð. Hann segir Samstöðina í greiðsluv...
Steindi sprakk úr hlátri þegar hann sá Dóra dansa við krakka - Vísir
📅 16.11.2026 👁️ 3
Steindi sprakk úr hlátri þegar hann sá Dóra dansa við krakka - Vísir
Meðal þess sem þeir félagarnir gerðu í borginni var að fara í útsýnistúr um borgina í bifreið sem breyttist á einu augabragði í bát. Þeir gistu í húsb...
Misstu GPS-merki í aðflugi
📅 16.11.2026 👁️ 4
Misstu GPS-merki í aðflugi
Klukkan 18:19, mánudagskvöldið 9. nóvember, var flugvél KLM í aðflugi að Schiphol-flugvelli í Amsterdam þegar báðir GPS-móttakarar vélarinnar urðu sky...
Hinir píkubörðu íslensku karlmenn
📅 16.11.2026 👁️ 4
Hinir píkubörðu íslensku karlmenn
Íris Erlingsdóttir skrifar: Sumir af víðlesnustu pennum landsins skrifa daglega heilu dálkana um Þorgerði Katrínu og Kristrúnu Frostadóttur og hvert e...
Musk í hópi tæknijöfra sem vill Huang aftur í forstjórastólinn
📅 16.11.2026 👁️ 4
Musk í hópi tæknijöfra sem vill Huang aftur í forstjórastólinn
Stuðningsmenn Jensens Huangs hafa stofnað til undirskriftarsöfnunar þar sem stjórn Nvidia er hvött til að setja Huang aftur í starf forstjóra fyrirtæk...
Orkuótti í Evrópu fyrir veturinn – gasbirgðir 20% undir meðaltali og verðhækkana óttast
📅 16.11.2026 👁️ 4
Orkuótti í Evrópu fyrir veturinn – gasbirgðir 20% undir meðaltali og verðhækkana óttast
Orkuótti í Evrópu fyrir veturinn – gasbirgðir 20% undir meðaltali og verðhækkana óttast Fréttin16. nóvember 2026Efnahagsmál, Erlent, OrkumálLeave a Co...
Reuters varar við áhættu í fjárfestingu í Bláa lóninu – eldvirkni og hátt verðmat vekja spurningar
📅 16.11.2026 👁️ 3
Reuters varar við áhættu í fjárfestingu í Bláa lóninu – eldvirkni og hátt verðmat vekja spurningar
Reuters varar við áhættu í fjárfestingu í Bláa lóninu – eldvirkni og hátt verðmat vekja spurningar Fréttin16. nóvember 2026Innlent, ViðskiptiLeave a C...
Sex olíuskip sögð hafa orðið fyrir sprengingum í Hormuz-sundi – Íran varar við frekari árásum
📅 16.11.2026 👁️ 3
Sex olíuskip sögð hafa orðið fyrir sprengingum í Hormuz-sundi – Íran varar við frekari árásum
Sex olíuskip sögð hafa orðið fyrir sprengingum í Hormuz-sundi – Íran varar við frekari árásum Fréttin16. nóvember 2026Erlent, Mið-AusturlöndLeave a Co...
Nafnar hlutu báðir sex ára dóm - Vísir
📅 16.11.2026 👁️ 4
Nafnar hlutu báðir sex ára dóm - Vísir
Dómur þess efnis var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 5. nóvember síðastliðinn en birtur í morgun. Með honum hlutu Kristinn Hólm Runólfsson o...