Þetta kom fram í máli ráðherra á minningarathöfn við Fossvogsspítala í tilefni af alþjóðlegum minningardegi um fórnarlömb umferðarslysa.
„Minningardagurinn hefur mikla þýðingu fyrir samfélagið. Við minnumst þeirra sem látist hafa í umferðarslysum og færum þakkir til viðbragðsaðila. Við horfum um öxl og metum hvað hefur áunnist og hvað gera megi betur. Þótt banaslysum hafi fækkað hlutfallslega yfir lengra tímabil verðum við þó enn vitni að hræðilegum banaslysum,“ sagði ráðherra.
Fræðslu- og kynningarátak
Það þurfi að horfast í augu við að mörg ungmenni hafi látið lífið í umferðarslysum vegna hraðaksturs. Það megi ekki sitja hjá við slíkar aðstæður, heldur grípa til aðgerða.
„Sett verður af stað sérstakt fræðslu- og kynningarátak um hraðakstur og þá mun ég kynna veigamiklar breytingar á umferðarlögum í samráðsgátt stjórnvalda á næstu dögum. Þeim er ætlað að efla umferðaröryggi enn frekar og stemma stigu við hraðakstri, meðal annars með því að styrkja heimildir lögreglu til að bregðast við alvarlegum umferðarlagabrotum. Við verðum að bregðast við og vinna bug á áhættuhegðun í umferðinni með samstilltu átaki okkar allra,“ sagði Eyjólfur.
Áhættuhegðun að aukast
Sjónum minningardagsins var að þessu sinni beint að ungum vegfarendum í umferðinni og hraðakstri ungmenna. Hraðakstur er ein helsta orsök alvarlegra slysa og banaslysa meðal ungs fólks. Í ár hafa fjögur ungmenni látið lífið í tveimur aðskildum slysum, annars vegar á Krýsuvíkurvegi og hins vegar á Miklubraut, en í báðum tilvikum er hraðakstur talinn hafa átt sér stað en málin eru enn til rannsóknar.
„Samkvæmt gögnum lögreglunnar eru skýr merki um að slík áhættuhegðun hafi aukist á ný í afmörkuðum hópum,“ segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.
Hafa víðtæk áhrif
Minningarathafnir fóru fram á sautján stöðum um allt land. Við athöfnina í Reykjavík flutti Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, einnig ávarp og söng MH-kórinn einkennislag dagsins, I Think of Angels. Lagið samdi KK til minningar um systur sína sem lést í umferðarslysi í Bandaríkjunum 1992.
„Ljóst er að umferðarslys hafa víðtæk áhrif í samfélaginu og snerta landsmenn alla með einum eða öðrum hætti. Í nýrri könnun Samgöngustofu kom meðal annars fram að rúmlega fjórðungur Íslendinga hafi misst náinn ættingja eða vin í umferðarslysi,“ segir í tilkynningunni.