Tveir menn eru grunaðir um að hafa ráðist á einn í miðborg Reykjavíkur á ellefta tímanum í morgun.
Lögregla hefur ítrekað þurft að hafa afskipti af árásarmönnunum, sem voru handteknir og vistaðir í fangaklefa þar sem þeir dvelja enn. Sá sem fyrir varð kallaði sjálfur eftir aðstoð lögreglu og var fluttur á slysadeild með sjúkrabíl. Hann hlaut skrámur og rispur á andliti og höfði eftir hnefahögg. Árásin er ekki metin sem alvarleg.