Kristen Michal, forsætisráðherra Finnlands, greindi frá þessu í dag.
Öllum landamærastöðvum við landamæri Eistlands að Rússlandi verður lokað frá og með 1. desember en ráðherrann gefur ekki upp hvenær stöðvarnar verði opnaðar á ný.
Átta lettneskir ríkisborgarar hafa verið handteknir og úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna gruns um að reyna að kveikja í húsnæði í eigu varnarmálafyrirtækisins Threod Systems í höfuðborginni Tallin í nótt.
Engan sakaði en talið er að hópurinn hafi ætlað að valda sprengingu sem myndi síðan valda bruna í húsinu. Fyrirtækið framleiðir meðal annars langdræga könnunar- og árásardróna.
Eistneska öryggisþjónustan (KAPO) hefur sagt að tilraunin til íkveikju hafi verið gerð að skipun leyniþjónustu rússneska hersins (GRU).
Rússar hafa ekki brugðist við ásökununum en stjórnvöld í Kreml hafa ítrekað hafnað ásökunum Evrópuríkja um meintan fjölþáttahernað í Evrópu.
„Ef Rússar halda áfram fjölþáttaaðgerðum sínum í Eistlandi – og við vitum að rússneskar leyniþjónustur nýta sér landamærastöðvar til að hafa áhrif á fólk – verðum við að vera reiðubúin að draga úr þeirri áhættu sem við stöndum frammi fyrir,“ sagði Kristen Michal forsætisráðherra í yfirlýsingu í dag.
„Lokun landamæranna myndi draga úr þeirri ógn sem steðjar að fólki í Eistlandi og senda skýr skilaboð um að árásir á varnariðnað og varnargetu Eistlands séu óásættanlegar,“ bætti hann við.