Íranski byltingarvörðurinn (IRGC) segir í yfirlýsingu að „tvö olíuflutningaskip sem sigldu um syðra bannsvæði Hormússunds hefðu orðið fyrir gríðarlegri sprengingu eftir að hafa rekist á tundurdufl“.
Al Jazeera segir að annað skipanna hafi verið mun stærra með meira en tvær milljónir tunna af hráolíu og að það hafi sokkið á syðra hafsvæði Persaflóa. Byltingarvörðurinn hvatti sjómenn á svæðinu til að gæta varúðar til að forðast árekstur við flakið.
Íranir gerðu drónaárás á bandaríska herstöð í Barein í dag. Loftvarnarkerfi náðu að koma í veg fyrir að drónarnir kæmust að herstöðinni. Íranir höfðu þar til nýlega ekki gert árás á Barein síðan í september.
Fyrr í vikunni fullyrti IRGC að Íranir hefðu gert árás á bandarískt ratsjárkerfi til snemmviðvörunar í Barein á föstudag. Bandaríski herinn hefur vísað fullyrðingunni á bug og segir að byltingarvörðurinn hafi skotið tveimur sjálfseyðingardrónum í átt að Barein og að bandarískar hersveitir hafi skotið þá báða niður.