Í desember í fyrra vakti það athygli að þvottabjörninn braust inn í vínbúð í Ashland í Virginíu í Bandaríkjunum þar sem hann braut fjölda áfengisflaska í versluninni og komst meðal annars í viskí og drakk nóg af því.
Drakk hann af svo mikilli áfergju að hann rotaðist inni á klósetti í versluninni, þar sem lögreglumenn fundu hann síðar.
Dýrið er fyrir vikið orðið að eins konar stjörnu í bæjarfélaginu og dýraathvarf í Hanoversýslu tók upp á því að selja boli og peysur með myndum sem byggja á uppátækjum þvottabjarnarins.
Washington Post segir frá því að Hanover County Animal Protection and Shelter hafi nú safnað 290 þúsund Bandaríkjadölum með því að selja varning með myndum af þvottabirninum. Fjárhæðin nemur um 35 milljónum króna.
Umrætt dýraathvarf annaðist þvottabjörninn eftir að hann fannst dauðadrukkinn inni á baðherbergi.