Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar:
„Kynvitund í Evrópu: Veiking réttinda kvenna, tjáningarfrelsis og opinnar umræðu“
Undir þessu slagorði var haldin ráðstefna í Brussel, um síðustu helgi sem fjallaði um kynvitund. Samtökin Athena Forum stóðu fyrir ráðstefnunni. Samtökin standa gegn kynvitund í löggjöf.
Samtökin fengu leyfi til að koma skoðunum sínum á framfæri fyrir Evrópuþingið. Anne Kalvig var ein af norsku þátttakendum en hún skrifaði lengri samantekt um ráðstefnuna á Substack-reikningi sínum.
Brot um málið hér. Feitletrun er mín.
Anne Kalvig útskýrir hvað Athena Forum stendur fyrir
Þetta er evrópsk hugveita og net, stofnað af austurrísku konunni Faika El-Nagashi, fyrrverandi stjórnmálamanni Græningjaflokksins. Hún er stjórnmálafræðingur, lesbía og hefur langa reynslu af stjórnmálastörfum innan og utan flokkskerfisins.
Árið 2025 ákvað hún að safna evrópskum konum saman á Athena Forum til að berjast gegn stefnu ESB og Evrópuráðsins á sviði kynjamála. Í bæði beinu (hörðu) og óbeinu (mjúku) löggjafarstarfi ákveða slík yfirþjóðleg samtök ramma þess sem á að gilda sem raunveruleiki og réttindi kvenna og karla.
Frá árinu 2006 hefur þessi löggjafarvinna snúist um að brjóta niður þekkingu á kyni og mikilvægi efnislegs veruleika sem, já, efnislegs veruleika, til að koma inn í staðinn frammistöðumiðaða blekkingu sem kallast „kynvitund“.
„Kynvitund“ er trú innan töfraheimsmyndar þar sem fólk tjáir sig og er það sem skapar raunveruleikann. Í þessari trú er karlmaður sem segir orðin „Ég er kona“ eða „Ég hef kvenkyns vitund“ fullkomlega kona og ætti að vera meðhöndluð og vernduð sem kona í öllum skilningi.
Þetta er auðvitað algjörlega eyðileggjandi fyrir samfélagið, því það er ósatt, órökrétt, andvísindalegt og fjarlægir núverandi réttindi og kerfi sem eiga að vernda viðkvæma hópa. Þar sem þetta snýst um hreinar lygar – karlar geta ekki orðið konur og konur geta ekki orðið karlar, ímyndaðu þér það – hefur pólitíska elítan tryggt að ekki sé hægt að ræða vandamálið. Það er „engin umræða“, því engar gildar röksemdir eru fyrir verkefninu. En Athena Forum og aðrir „transfóbískir“ hópar, samtök og einstakar konur sem tala með miklum kostnaði neita að láta þagga niður í sér þegar staðreyndamiðuð þekking og réttindi hverfa.
Tveir fyrirlesarar
Á ráðstefnunni voru tveir fyrirlesarar, El-Nagashi og Helen Joyce sem var með aðalræðuna. Joyce er írskur stærðfræðingur, blaðamaður, ritstjóri og rithöfundur sem hefur náð miklum árangri með bók sinni frá 2021, Trans: Gender Identity and the New Battle for Women’s Rights.
Kalvig skrifar um ræðu Joyce
Joyce er hluti af forystu bresku samtakanna Sex Matters og sem Íri sér hún greinilega andstæðuna milli meiri árangurs Bretlands í baráttunni gegn transbrjálæðinu en eigin heimalands – og hluta af Evrópu, þar á meðal Noregi (bæta má Íslandi við). Hún er frábær ræðumaður, skörp, fyndin og jarðbundin á sama tíma, sannkallaður ræðuskörungur sem vert er að hlusta á.
Í ræðunni lýsti hún því, hvernig fjölmiðlar hafa ritskoðað og þaggað niður í henni, sama með bókina hennar, þar sem tjáningarfrelsi var eitt af umræðuefnum kvöldsins. Hún útskýrði einnig hvernig bann við umbreytingarmeðferð muni hafa mismunandi áhrif á pólitíska og lagalega stöðu á „terf-eyju“ og í löndum sem hafa í miklu mæli sætt sig við frásögn um kynvitund.
Trans aðgerðasinnar og andstæðingar kvennabaráttunnar hafa lagt til að baráttukonur eins og hér um ræðir búi á sérstakri eyju til að losna við þær úr samfélögunum. Eyjan ætti að heita „Terf-eyja“, segja trans aðgerðasinnar en skammstöfunin stendur fyrir „trans-exclusionary radical feminist.“ Umburðarlyndið, kærleikurinn og ástin birtist eins og tær kristalkúla í þessum óskum. Pottlok á tjáningarfrelsið. Fjarlægja konur sem hugnast ekki trans hugmyndafræðinni og áhrif hennar á börn.
Hér á landi nota aðgerðasinnar sama tungumál.
Fjórir meðlimir pallborðsins kynntu reynslu sína
Carrasco, leiðtogi Feministes de Catalunya, fékk líflátshótanir og rógsherferðir hafnar gegn henni vegna þess að hún stendur vörð um efnislegan veruleika og hefur sýnt hversu skaðleg uppbygging „trans-barnsins“ er. Sem prófessor í félagsmannfræði þurfti hún að hætta fyrr en áætlað var vegna ógnvekjandi ástands.
Slík dæmi höfum við á Íslandi líka.
„Mér var ýtt út vegna skoðana minna“ – Helga Dögg segir frá erfiðum starfslokum í Síðuskóla
Duwe, grafískur hönnuður og sjálfstætt starfandi, hefur farið í gegnum mörg dómsmál. Hún er sögð hatursfull vegna þess að hún hefur opinberlega gagnrýnt afnám réttinda kvenna vegna innleiðingar „kynvitundar“ í löggjöfina. Stefna hennar er að vera eins opin og mögulegt er um þá mótstöðu sem hún upplifir.
Daaji, með fjölmenningarlegan bakgrunn, er í forystu Evrópska nets innflytjendakvenna. Hún minnti okkur sterklega á það sem við höfum öll raunverulega áhyggjur af: baráttuna gegn ofbeldi gegn konum, mansali, vændi, klámi, staðgöngumæðrun og að femínískar konur myndi öflugt samfélag. Í staðinn þurfum við að verja tíma og peningum, og ýmsan annan kostnað, í það sem að mínu mati er lang heimskulegasta og fáránlegasta hugmyndafræði og trúarkerfi sem heimurinn hefur séð, og erfitt er að skilja. Daaji mótmælti einnig lífsfjarlægum, póstmódernískum hugmyndum um að „hinir“ hefðu ekki hugmyndir um „tvö kyn.“
Kalvig sagði sjálf frá því hvernig hún var hrakin út úr akademíu eftir 25 ára þjónustu sem trúarfræðingur, vegna andstöðu við hugmynd sem er augljóslega frumspekileg og trúarleg og er tekin með sem staðreyndir í löggjöfinni. Einu sinni var slík blanda óeðlileg í veraldlegum ríkjum, nú er það reglan. En þetta er spurning um „kynvitund.“
Vitnisburður okkar sýnir svo ekki verður um villst, að konur sem setja mörk, segja nei, minna okkur á efnislegar staðreyndir, réttindi og þarfir kvenna og barna eru ekki liðnar í Evrópu undir yfirskini „kynvitundar.“
Politikus tók viðtal við Anne Kalvig um ráðstefnuna og transmál almennt í greininni The Trans Ideology is Authoritarian: Threat to Girls, Women, Homosexuals. Lík eru eyðilögð.
Heimild: «Kjønnsidentitet i Europa: Svekker kvinners rettigheter, ytringsfrihet og åpen debatt» | steigan.no
Höfundur er fyrrverandi grunnskólakennari.