Bandaríkin lögðu til að Úkraína gæfi eftir land til Rússa í skiptum fyrir inngöngu í NATO. Þetta sagði Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu í samtali við fjölmiðla. Þá séu þær kröfur sem Rússar geri um breytt landslag í öryggismálum Evrópu hættulegar.
Fjölmiðlar hafa greint frá því að í friðarviðræðunum í Úkraínu hafi Rússar sett ákveðin skilyrði í öryggismálum Evrópu. Meðal annars eigi Rússland að halda sínum hernumdu svæðum og fá að auki Donetsk og Luhansk sem þeim hefur ekki tekist að hernema að fullu. Þá afsali Úkraína sér möguleikanum á að ganga í NATO og Finnland verði að segja sig úr NATO. Friedrich Merz kanslari Þýskalands hefur þegar sagt að þessar tillögur séu ekki til umræðu.
Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu tók undir það í samtali við fréttamenn í gær, sem var birt í morgun. Þar sagði hann að Evrópusambandið og NATO væru eina raunverulega öryggi Evrópu. „Þetta er hættulegt vegna þess að ég held að slíkt muni einmitt leiða til stríðs og stigmögnunar,“ sagði hann.
Zelensky upplýsti jafnframt að Bandaríkin hefðu lagt til að Úkraínumenn gæfu eftir land í skiptum fyrir að fá að ganga í NATO. „Þetta er í fyrsta sinn sem þetta var tekið til umræðu,“ sagði forsetinn. Úkraína væri að ræða við NATO og ESB um öryggistryggingar. „Ef Vesturlönd staðfesta þær verð ég að spyrja samfélagið í Úkraínu hvað því finnst; samþykkjum við þetta eða ekki. Ég hef engan rétt á að taka slíka ákvörðun einn.“
Zelensky sagði jafnframt að Rússar væru að leggja allt undir að ná yfirhöndinni í vetur. Ef Bandaríkjaþing myndi samþykkja viðskiptaþvinganir og vopnasendingar til Úkraínu væri það sá hvati sem Vladimír Pútín forseti Rússlands þyrfti til að draga úr hernaði.