Eurovision-keppnin í Asíu verður haldin í Bangkok í Taílandi dag. Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva færði út kvíarnar í tilefni af sjötugsafmæli keppninnar og nam land í nýrri heimsálfu.
Hugmyndin er ekki ný af nálinni en rætt hefur verið um asíska Eurovision-keppni í að minnsta kosti tvo áratugi. Umræðan bar þó ekki ávöxt fyrr en nú.
Aðeins 11 lönd taka þátt í þessari fyrstu tilraun til að halda keppnina í Asíu. en það eru gestgjafarnir Taíland ásamt Malasíu, Filippseyjum, Víetnam, Kambódíu, Laos, Suður-Kóreu, Mongólíu, Bangladesh, Nepal og Bútan.