Í byrjun nóvember sendi Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, tíu fyrirspurnir á nokkur ráðuneyti með samtals um 320 spurningum.
Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins og formaður fjárlaganefndar, sagði í kjölfarið í samtali við fréttastofu að Guðlaugur væri að „setja sand í tannhjól“ þingsins og þannig tefja störf þingsins.
Þá sagði Sigurjón Sjálfstæðismenn vera orðna „hina nýju Pírata“ en Píratar, þá sérstaklega Björn Leví Gunnarsson, voru duglegir við að senda fyrirspurnir á ráðuneyti þegar þeir voru enn á þingi. Það fyrirspurnaflóð fór ekki vel í suma stjórnarþingmenn á sínum tíma.
Gervigreindar-Gulli
Í gær birtist grein á vef Kratans, sem er málgagn þingflokks Samfylkingar, og má þar finna greinar sem titlaðar eru „fréttir“ eftir nafnlausa höfunda og snúast annað hvort um störf Samfylkingarinnar eða eru gagnrýni á störf annarra stjórnmálaflokka, nafnlausar greiningar á því sem er að gerast í pólitíkinni og skoðanagreinar eftir þingmenn flokksins og framkvæmdastjóra þingflokksins. Í greininni er Guðlaugur Þór kallaður „Gervigreindar-Gulli“ og gervigreindin sögð hafa skrifað allar hans fyrirspurnir.
„Gervigreind var einfaldlega látin framleiða spurningalista til að setja sand í tannhjól Alþingis og tefja framgang mála. Þetta var einfaldlega pólitísk tafaaðgerð, úr sömu leikbók og málþófið í veiðigjaldamálinu,“ segir í greininni.
Vopnaður vitvél
Þá er Guðlaugi aftur líkt við Pírata, líkt og Sigurjón gerði. Munurinn sé að Guðlaugur leggi þær fram á iðnaðarskala og sé við stýrið á „sjóræningjaskipinu“.
„Í stað sverðs er hann vopnaður vitvél og notar hana miskunnarlaust til að búa til tilgangslausan öldugang. Minna fer fyrir því að hann viti hvert hann ætli að sigla fleyinu. En það er svo sem ekkert nýtt,“ segir í greininni.
Eitra brunninn
Við þetta er Björn Leví ekki sáttur. Í skoðanagrein sem hann birti á Vísi í dag gagnrýnir hann orðaval Sigurjóns og nafnlausa höfunds Kratans. Fyrirspurnir hans hafi ekki verið nein sóun.
„Þetta heitir að eitra brunninn. Hópur er stimplaður nógu oft til þess að það eitt að líkja einhverjum við hann teljist gagnrýni. Nú er sú ímynd notuð til að skjóta á Sjálfstæðisflokkinn. Kaldhæðnin í því fer ekki fram hjá mér hvað það varðar. Sjálfstæðismönnum þykir það eflaust óþægilegt, enda kvörtuðu þeir einna hæst undan spurningum okkar. En að aðrir flokkar taki nú upp sömu línu segir meira um þá en um fyrirspurnirnar,“ segir Björn Leví.
Ákveðin Þórðargleði
Það kosti vissulega vinnu að svara, líkt og fulltrúar ríkisstjórnarinnar eru að benda á með gagnrýni sinni og Sjálfstæðismenn bentu á þegar spurningaflóð Pírata var sem mest. Það kosti hins vegar meira að stjórnsýslan starfi án þess að nokkur fylgist með.
„Sá sem kvartaði yfir Pírötum en ver nú eigin fyrirspurnir, eða öfugt, ætti að spyrja sig hvort gagnrýnin hafi nokkurn tíma snúist um fyrirspurnirnar, eða bara um það hver spurði. Ég viðurkenni ákveðna Þórðargleði yfir því að fyrrum gagnrýnendur mínir sæti nú sömu gagnrýni og þeir beindu að mér. Það afhjúpar hræsni þeirra ágætlega,“ segir Björn Leví.
„En um leið eru núverandi valdhafar að gera nákvæmlega það sama og fyrri valdhafar gerðu við mig. Þeir dæma spyrjandann en ekki spurningarnar sem þeim ber bara að svara samkvæmt stjórnarskrá. Það er okkar kjósenda að dæma hvort þingmenn fari málefnalega með eftirlitsvaldið.“
Finni eina fyrirspurn
Hann biður þá sem nota „Pírati“ sem skammaryrði að finna eitt dæmi um fyrirspurn sem var ómálefnaleg.
„Að spyrja er ekki skemmdarverk. Það er nauðsynlegur hluti af starfinu og við eigum að gera þá kröfu að allir sem taka þátt í umræðunni séu málefnalegir. Í þetta skiptið stóðst enginn þá kröfu. Ekki Guðlaugur Þór, ekki Sigurjón og ekki Kratinn. Þeir fóru allir í manninn og gripu til uppnefninga eins og eineltisseggir á skólalóð. Ég varð sjálfur fyrir uppnefningum sem krakki og læt það ekki óáreitt að fullorðið fólk hagi sér svona. Gerið betur,“ segir Björn Leví.