„Ég vissi ekkert af þessu fyrr en ég var komin út á völl,“ segir Sara í samtali við Vísi en hún lenti á Keflavíkurflugvelli rúmlega hálf átta í morgun, um klukkustund á eftir áætlun.
„Þau seinkuðu fluginu og flýttu því svo, svo vissi enginn neitt og það var verið að aflýsa fullt af ferðum,“ segir hún fegin að hafa komist heim. Hún segist hafa upplifað töluverða óreiðu og óvissu á flugvellinum en hún hafi alls ekki komið svo illa út úr þessu. Hún hafi komist heim og töfin ekki verið veruleg.
Hún segir mikla óvissu hafa verið í aðdraganda þess að þau lögðu af stað og farþegar hafi fengið ólík skilaboð. Eftir að hún kom á flugvöllinn hafi hún beðið eftir SMS-i frá Icelandair og ekki vitað almennilega hvort hún ætti að innrita sig í flug. Þau hafi fengið skilaboð um seinkun en svo hafi fluginu verið flýtt og hún þá drifið sig út í vél.
Biðu ekki lengi í vélinni
„Við tókum af stað nær um leið og banninu var aflétt,“ segir hún og að farþegar hafi þegar verið komnir út í vél.
Flugbannið stóð í tæpa fimm tíma og hefur haft áhrif á milljónir farþega. Búist er við því að miklar tafir verði í dag á meðan flugfélög koma sér aftur af stað. Þúsundum flugferða hefur verið aflýst víða um Bandaríkin.
Á áætlun í Keflavík
Á vef Keflavíkurflugvallar má sjá að flug Icelandair til Bandaríkjanna síðdegis eru enn á áætlun en áætlaðar eru ferðir til Chicago, Raleigh, Washington, New York, Denver, Boston, Baltimore, Seattle, Miami og Orlando.
Flugi þeirra frá Denver, sem átti að lenda klukkan 10.30 í morgun, hefur verið aflýst en öðrum flugferðum virðist aðeins hafa verið frestað og þær lentu í morgun eða eru áætlaðar á næstu klukkutímum.