AP greinir frá en í umfjöllun miðilsins segir að áhöfn hafi misst stjórn á skipinu, er því var siglt um Mississippiá, með þeim afleiðingum að það hafi rekist í ferjubát American Heritage. Fraktskipið var á vegum Atlantic Asphalt.
Viðbragðsaðilar voru kallaðir til og hafa allir farþegar komist í leitirnar sem og áhöfnin.
„Það er ekki neins saknað sem er sannarlega kraftaverk á Mississippiá,“ sagði Helena Moreno, borgarstjóri í New Orleans, á blaðamannafundi í gær.
Hún tók þó fram að 32 hefðu verið fluttir á spítala en enginn þeirra væri í lífshættu.
Í umfjöllun AP segir að skipið hafi hallað á aðra hliðina skömmu á meðan viðbragðsaðilar hafi reynt að koma fólki af bátnum. Tveir lögreglumenn féllu í ána.
Um 130 farþegar voru um borð í ferjunni auk áhafnar, að því er Marine Traffic greindi frá.