„Mér sýnist þetta falla úr garði öðrum megin og þvert yfir göngustíginn og fellur í raun og veru á húsið hinum megin,“ segir Gustavo Blanco í samtali við Vísi.
Hann átti leið hjá á níunda tímanum í morgun og sá þar tréð þar sem það hafði lagst þvert yfir stíginn í garðinum á milli húsa við Brávallagötu og Ljósvallagötu, skammt frá Hólavallakirkjugarði.
Hann veltir því fyrir sér hvort það hafi fallið í vindaveðrinu í gær. Allhvasst var í nótt og gular og appelsínugular veðurviðvaranir í gildi víða um land, þó ekki á suðvesturhorninu.
Sjá einnig: Veðrið í dag
„Grindverkið hafði farið hressilega í sundur,“ bætir hann við.
Aftur á móti virðist frekara tjón ekki hafa orðið. Um stærðarinnar tré er að ræða, að sögn Gustavo. „Og það er mjög fallegt,“ bætir hann við.
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu kannaðist ekki við málið. Varðstjórinn sagði að engin útköll hefðu borist vegna veðurtjóns í nótt.
„Ekkert,“ segir Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu. „Ekki neitt.“