Eftir að það losnaði hafi komið í ljós að bryggjupollar höfðu brotnað og hékk skipið á einni taug þegar að var komið.
„Lóðsinn á Akureyri var ræstur út sem og björgunarsveitin Súlur, á Akureyri. Mikið hafrót var í höfninni en með aðstoð lóðsins tókst að koma áhöfn um borð og setja vélar þess í gang,“ segir í tilkynningu lögreglunnar.
Lóðsinn hafi svo náð að aðstoða við að ná skipinu úr höfninni og sigldi það síðan að Oddeyrarbryggju þar sem því var lagt. Ekki er talið að tjón hafi orðið á skipinu en það verður skoðað við betra tækifæri en eitthvert tjón er á hafnarmannvirkjum í Krossanesi.
Þök að fjúka og brotnar rúður
Í tilkynningu lögreglunnar segir enn fremur að þau hafi sinnt fjölda verkefna í gær vegna veðurs.
Í tilkynningu frá þeim kemur fram að fyrstu verkefni hafi borist um klukkan 21 í gærkvöldi. Þá hafi verið tilkynnt um að þak væri að fjúka af húsi á Ólafsfirði og skömmu síðar hafi svo komið önnur tilkynning um að rúða hefði brotnað í húsi, einnig á Ólafsfirði. Björgunarsveitir á Ólafsfirði og Siglufirði voru ræstar út í þau verkefni.
Þá kom samkvæmt lögreglu einnig aðstoðarbeiðni vegna foktjóns á Dalvík og sinnti björgunarsveitin á Dalvík því verkefni.
Enn eru appelsínugular viðvaranir í gildi og er fylgst með gangi veðurs í vakt að neðan.