Donald Trump, Vladimír Pútín og Xi Jinping, forsetar Bandaríkjanna, Rússlands og Kína, ætla að ræða saman 19. nóvember á ráðstefnu Efnahagssamvinnuráðs Asíu- og Kyrrahafsríkjanna sem haldin verður í kínversku borginni Shenzhen.
Rússneska fréttaveitan RIA hefur þetta eftir talsmanni stjórnvalda í Kreml. Olivia Wales, talskona Hvíta hússins, segir Trump forseta ætla að leggja megináherslu á fækkun kjarnorkuvopna í heiminum. Honum þyki útbreiðsla slíkra vopna orðin afskaplega hættuleg.