Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, greindi frá þessu í samtali við blaðamenn í dag og nefndi að þetta væri í fyrsta sinn sem slík tillaga hafi komið fram.
Hann átti á fimmtudag fund með Steve Witkoff, sérstökum sendifulltrúa Donalds Trump Bandaríkjaforseta, í Dyflinni á Írlandi. Witkoff hafði einnig átt fund með Rússum í Moskvu fyrr í vikunni.
Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefur lengi viljað leggja undir sig Donbas-svæðið og hefur hann áður sagt að möguleg NATO-aðild Úkraínu sé meðal ástæðna þess að Rússar hafi hafið innrás sína í landið í febrúar 2022.
Stór hluti Donbas-héraðs er undir stjórn Rússahers en víglínan þar hefur verið svo gott sem frosin svo mánuðum skiptir.
„Bandaríkjamenn vörpuðu fram spurningu: „Hvað ef Úkraína gengur í NATO? Væru Úkraínumenn reiðubúnir að fara frá Donbas?“ Þetta var í fyrsta sinn sem stungið hefur verið upp á þessu,“ sagði Selenskí við blaðamenn í dag.
Úkraínuforsetinn tók fram að Úkraínumenn hefðu ekki í hyggju að gefa eftir landsvæði en sagði þó að ef Úkraína fengi „ítarlegan öryggispakka“ sem tryggði herstuðning af hálfu NATO, rétt til öflugs og vel fjármagnaðs hers og fé til uppbyggingar þá myndi hann setja spurninguna í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Rússneskir erindrekar sem ræddu við erindreka frá Úkraínu og Bandaríkjunum í Sameinuðu furstadæmunum í vikunni kröfðust þess að ríkjum Austur-Evrópu yrði vísað úr Atlantshafsbandalaginu.
Þeir kröfðust þess að allir hermenn NATO og hergögn yrðu flutt frá ríkjum sem gengu til liðs við bandalagið eftir árið 1997 og að engar heræfingar yrðu framkvæmdar í Austur-Evrópu, Kákasusfjöllum eða Mið-Asíu í framtíðinni.