Slökkviliðið í Borgarbyggð gerði sér lítið fyrir og kveikti í húsi í sveitarfélaginu í dag. Það var þó ekki í sama tilgangi og gengur og gerist hjá brennuvörgum heldur hluti af æfingu slökkviliðsins.
„Okkur áskotnaðist hús sem átti að rífa eða þurfti að farga, gamalt timburhús, og við fengum tækifæri til að brenna það.“
Þetta segir Þórður Sigurðsson varðstjóri. Hann segir eiganda hússins hafa haft samband við slökkviliðið og boðið þeim húsið sem hafi hvort eð er átt að rífa. Það sé ekki oft sem slökkviliðinu gefist tækifæri sem þetta en það sé afar dýrmætt, einkum fyrir nýliða.
„Við bara fengum mjög dýrmæta reynslu þarna með því að fylgjast með þróun eldsins og sjá hvernig hann hagar sér í svona gömlum timburhúsum.“
Slökkviliðið hafi kveikt og slökkt í húsinu til skiptis og fylgst með hegðun eldsins allt frá því að kviknar í þar til húsið verður alelda.
„Þetta gekk ljómandi vel. Það var mjög gott veður og vindátt og allt alveg eins og best verður á kosið.“