Staðið hefur til að halda söngvakeppni milli asískra ríkja um árabil. Ástralir ætluðu upphaflega að halda utan um verkefnið og bjóða ríkjum Eyjaálfu að vera með en eftir að þeir fengu inngöngu í hina sönnu Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, sem oftast er kölluð Eurovision, sendu þeir boltann annað.
Keppnin er haldin af einkafyrirtækinu Voxovation og Sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva, EBU. Ellefu ríki tóku þátt í þessari fyrstu útgáfu keppninnar.
Carmelle er fædd árið 2007 og hefur notið mikilla vinsælda í heimalandinu. Lagið Sobra-Sobra fjallar um fjallar um það að samfélagið telji konur alltaf vera annað hvort of mikið eða ekki nóg.
Keppnin fór fram í Taílandi og enduðu heimamenn í öðru sæti. Víetnamar voru í þriðja sæti, Malasar í fjórða og Laosar í því fimmta.