Erfiðara er að fá vinnu nú en fyrir ári síðan, samkvæmt greiningu BHM. RÚV greinir frá þessu. Samkvæmt tölum Hagstofunnar mældist atvinnuleysi 5,9% í september en var 4,8% á sama tíma í fyrra. Samkvæmt niðurstöðurm BHM var hlutfall fólks sem vantar vinnu eða vill vinna meira en það gerir 14% í september og hefur ekki verið hærra í fimm ár. Lausum störfum hefur fækkað um 35% frá því á sama tíma í fyrra.
Erfiðara að fá vinnu og atvinnuleysi á uppleið