Í tilkynningu segir að sérstakur fundur um forystu kvenna í friðar- og öryggismálum verði haldinn í Höfða, fjötutíu árum eftir leiðtogafundinn í Höfða. Þá verður sérstök vinnustofa þingkvenna haldin í Hörpu sunnudaginn 15. nóvember þar sem fjallað verður um stafrænt ofbeldi gegn konum og áhrif gervigreindar á samfélög og hagkerfi.
„Heimsþing kvenleiðtoga, Reykjavik Global Forum, verður haldið í níunda sinn í Reykjavík dagana 15.–17. nóvember í samstarfi við ríkisstjórn Íslands og Alþingi og með stuðningi fjölmargra íslenskra og alþjóðlegra samstarfsaðila. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, er sérstakur verndari Heimsþingsins. Á þinginu koma saman leiðtogar úr stjórnmálum, atvinnulífi, alþjóðastofnunum, vísindum og frjálsum félagasamtökum til að ræða leiðir til að efla forystu kvenna og samstarf um lausnir á brýnum alþjóðlegum áskorunum.
Í ljósi stöðu heimsmála verður sérstök áhersla lögð á frið, öryggi og stöðu lýðræðis. Á sérstökum fundi í Höfða undir yfirskriftinni „Sustainable Stability – Session on Women's Leadership & Peace“ koma leiðtogar saman til að ræða mikilvægi þátttöku kvenna í friðarumleitunum, alþjóðlegri öryggisstefnu og uppbyggingu varanlegs friðar. Fundurinn er haldinn í samstarfi Reykjavík Global, utanríkisráðuneytis Íslands, UN Women á Íslandi og alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands. Fundarstaðurinn hefur sérstaka sögulega skírskotun, en í ár eru 40 ár liðin frá leiðtogafundi Ronalds Reagan og Míkhaíls Gorbatsjovs í Höfða árið 1986.
Á sunnudaginn 15. nóvember verður jafnframt haldin sérstök vinnustofa þingkvenna í Hörpu þar sem fjallað verður um stafrænt ofbeldi gegn konum, meðal annars þátt gervigreindar í því ofbeldi. Rætt verður hvernig tækniþróun hefur skapað nýjar ógnir við öryggi kvenna, þátttöku þeirra í opinberri umræðu og lýðræðisleg réttindi. Áhersla verður lögð á ábyrgð stjórnvalda, löggjafarvald og alþjóðlegt samstarf til að bregðast við þessum áskorunum.
Á Heimsþinginu verður einnig fjallað um efnahagsleg áhrif jafnréttis, þátttöku kvenna í ákvarðanatöku, framtíð vinnumarkaðarins og áhrif gervigreindar á samfélög. Sérstaklega verður sjónum beint að því hvernig aukið samstarf þvert á landamæri, atvinnugreinar og kynslóðir getur stuðlað að sterkari samfélögum, aukinni seiglu og sjálfbærri framtíð. Þá verða kynntar niðurstöður Reykjavíkur-Vísitölunnar (Reykjavik Index for Leadership) 2026-2027 sem mælir samfélagsleg viðhorf einstaklinga til leiðtogahlutverka karla og kvenna í ólíkum starfsgreinum innan G7 ríkjanna. Mælingarnar hafa farið fram árlega frá árinu 2018 og gefa því skýra mynd af þróun viðhorfa fólks til kvenleiðtoga.
Meðal lykilþátttakenda á Heimsþingi kvenleiðtoga í ár eru Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra Íslands, Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, Julia Gillard, fyrrverandi forsætisráðherra Ástralíu, Mathias Cormann, framkvæmdastjóri Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD), Lisa Murkowski, öldungadeildarþingmaður Bandaríkjaþings frá Alaska, og Michelle Hinchey, þingkona í öldungadeild New York-ríkis. Þá taka þátt Jody Williams, handhafi friðarverðlauna Nóbels, Julie Inman Grant, netöryggisfulltrúi Ástralíu, Irene Fellin, sérstakur fulltrúi framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins (NATO) í málefnum kvenna, friðar og öryggis, Meghan Gilgan, yfirmaður stefnumótandi samstarfs hjá UN Women, Hajer Sharief, friðarsinni og mannréttindafrömuður frá Líbíu, Payzee Mahmod, baráttukona gegn kynbundnu ofbeldi, og Anda Filip, framkvæmdastjóri Alþjóðaþingmannasambandsins (IPU). Einnig verða meðal þátttakenda Ziauddin Yousafzai og Toor Pekai Yousafzai, foreldrar Malölu Yousafzai sem hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 2014, Amrita Kapur, framkvæmdastjóri Alþjóðasamtaka kvenna um frið og frelsi, Amy Hepburn, forstjóri Investor Leadership Network, og Adela Raz, fyrrverandi sendiherra Afganistans í Bandaríkjunum. Auk þeirra koma saman fjölmargir leiðtogar úr stjórnmálum, atvinnulífi, alþjóðastofnunum og mannréttindasamtökum víðsvegar að úr heiminum,“ segir í tilkynningu.