Ráðherra var ekki viðstaddur ríkisstjórnarfund á þriðjudag og ekki heldur þegar ríkisstjórn kom saman til fundar í morgun.
Þá var Þorgerður jafnframt skráð með fjarvistarleyfi frá öllum þremur þingfundum vikunnar sem fóru fram á mánudag, þriðjudag og miðvikudag.
Þingfundir hafa því ekki verið alla daga vikunnar og hefur starfsemi þingsins að einhverju marki verið helguð nefndarfundum og heimsóknum.
Til að mynda hefur utanríkismálanefnd verið stödd í heimsókn í Japan þessa vikuna í tilefni af 70 ára afmæli stjórnmálasambands Íslands og Japan.
Markmið heimsóknarinnar er að ræða við fulltrúa japanska þingsins og annarra stjórnvalda um samskipti ríkjanna og samstarf þeirra, meðal annars á sviði jarðvarma, fríverslunar, norðurslóðamála og jafnréttismála.
Einnig verður rætt um stöðu alþjóða- og öryggismála í Austur-Asíu. Átti nefndin fundi í Tókýó, Kyoto og Hiroshima en ferðinni lýkur í Osaka.
Þorgerðar Katrínar fór í opinbera heimsóknir til Víetnams og Kína í október. Í Víetnam undirritaði hún fríverslunarsamning EFTA við þarlend stjórnvöld í Hanoi. Í Kína fór hún fyrir íslenskri sendinefnd á sjávarútvegssýninguna í Qingdao og fundaði með Wang Yi, utanríkisráðherra Kína, í Peking.