Dómnefndin hefur skilað dómsmálaráðherra umsögn um umsækjendurna. Skipað verður í annað embættið en sett verður í hitt til 28. febrúar 2029. Ragnheiður Snorradóttir og Sigríður Elsa Kjartansdóttir, sem einnig eru báðar héraðsdómarar, sóttu einnig um embættin.
Dómnefndina skipuðu: Helgi I. Jónsson formaður, Helga Melkorka Óttarsdóttir, Ingveldur Einarsdóttir, Jóhannes Sigurðsson og Reimar Pétursson.