Myndband af ferðamanni í Fellsfjöru er að vekja mikla athygli á samfélagsmiðlum.Ástæðan er að konan er aðeins klædd í bikiní í kuldanum og dansar í fjörunni. Vinsæla Instagram-síðan „Influencers in the wild“, sem er gullnáma fyrir skemmtilega afþreyingu, birti myndbandið í gær og hefur það fengið rúmlega 400 þúsund áhorf.Í myndbandinu má sjá konuna í Fellsfjöru, sem túristarnir þekkja sem „Diamond Beach“, við Breiðamerkursand.
Ferðamaður lét ekki kuldann stoppa sig - Sjáðu myndbandið