Áhöfn á finnsku herskipi á Finnlandsflóa varð vör við sprengingu á miðvikudagsmorgun og við eftirgrennslan kom í ljós að reykur barst frá rússnesku herskipi. Skipið var ásamt fleirum undan eyjunni Gogland, sem er rússnesk en einungis fjörutíu kílómetra suður af Finnlandi og 55 kílómetra norður af Eistlandi.
Umferð rússneskra herskipa hefur, samkvæmt eistneskum fjölmiðlum, aukist til muna á þessum slóðum undanfarið.
Nú er talið víst að sprengingin um borð í herskipinu hafi verið drónaárás Úkraínumanna. Talsmenn þarlendra yfirvalda segjast hafa gert árás á rússnesk herskip á sama tíma. Þetta er fyrsta árásin á þessum slóðum sem rakin er til Úkraínuhers og þykir sæta tíðindum vegna þess að dróninn hefur flogið um tvö þúsund kílómetra áður en hann kom að skotmarki sínu og gat greint rétta skipið úr fjölda skipa á þessum slóðum. Úkraínumenn segjast einnig hafa gert drónaárás á olíuútflutningshöfn í Ust-Luga, austast í Finnlandsflóa.
Ferjur milli Finnlands og Eistlands sigla skammt undan á hverjum degi. Antti Häkkänen, varnarmálaráðherra Finnlands, sagðist hafa rætt við úkraínska ráðamenn vegna þessa og raunar áður, til að gera þeim grein fyrir því hversu fjölfarin siglingarleið þetta væri og að gæta yrði öryggis almennings. Hann sagði finnska ríkisútvarpinu YLE að almenningur þyrfti þó ekki að hafa neinar áhyggjur af því að sigla á þessum slóðum.