Miss Universe-fegurðarsamkeppnin fer fram í Púertó Ríkó þann 24. nóvember næstkomandi. Púertó Ríkó er bandarískt yfirráðasvæði og þarf bandaríska vegabréfsáritun til að ferðast þangað.
Roseanna Hall vann keppnina í Simbabve og átti að mæta til Púertó Ríkó í dag en situr föst heima. Í myndbandi á samfélagsmiðlum segist hún enn vera að bíða eftir því að fá samþykkta vegabréfsáritun. Simbabve er á lista bandarískra stjórnvalda yfir ríki sem þurfa að sæta sérstökum ferðatakmörkunum til Bandaríkjanna eftir forsetatilskipun Donalds Trump sem tók gildi síðustu áramót.
Sambía er einnig á þeim lista. Pamela Mubanga, keppandi Sambíu, hefur dregið sig úr keppni vegna vandræðanna. Þá er enn tvísýnt hvort keppandi Suður-Súdan komist til Púertó Ríkó vegna þessa. Keppendur fleiri Afríkuríkja eru einnig í bobba.
Sigríður Ósk Hrafnkelsdóttir, einnig þekkt sem Sigga Ózk, er keppandi Íslands eftir að hafa sigrað Ungfrú Ísland-keppnina í apríl.