Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu gerðist brotlegur við lög um jafna meðferð á vinnumarkaði þegar hann skipaði í embætti aðstoðaryfirlögregluþjóns á rannsóknarsviði árið 2023. Þetta segir í úrskurði kærunefndar jafnréttismála.
Að mati nefndarinnar varð ekki séð að hlutlæg og málefnaleg sjónarmið hafi legið til grundvallar ákvörðun lögreglustjóra að boða einn umsækjanda ekki í seinna viðtal hjá valnefndog útiloka hann frá umsóknarferlinu.
„Samkvæmt framansögðu er það því niðurstaða kærunefndar jafnréttismála að kærði hafi mismunað kæranda á grundvelli aldurs,“ segir í úrskurði.
Ekki boðið í seinna viðtal
Umsækjandi kærði það til nefndarinnar að manneskja sem var tæplega tveimur áratugum yngri en hann hefði verið ráðin og taldi að sér hefði verið mismunað á grundvelli aldurs.
Fimm sóttu um embættið og valnefnd mat þá. Að loknum viðtölum voru tveir boðaðir til annars viðtals. Að þeim loknum var skipað í embættið.
Málið snýr að því hvort ákvörðunin að veita umsækjandanum ekki annað viðtal við valnefnd hafi falið í sér mismunun á grundvelli aldurs. Umsækjandanum fannst hann ekki hafa verið metinn að verðleikum með tilliti til stjórnunarreynslu.
Við ráðninguna var litið til þess hve löng stjórnunarreynslan var og þess hve nýleg hún var. Umsækjandinn hafði 7–8 ára stjórnunarreynslu en þar sem hún var rúmlega 15 ára gömul var hún ekki metin til jafns við þá sem var nýlegri. Kærandinn hélt því fram að þarna hefði honum verið mismunað á grundvelli aldurs.
Vísaði til mismunandi kynslóða
Kærunefndin telur ekki ómálefnalegt að líta til árafjölda eða hve nýleg reynsla er. Nefndin fékk þó ekki séð að lagt hefði verið mat á það hvort reynsla hans hefði verið farsæl eða hvort hún félli að hæfnikröfum. Lögreglustjóri vísaði enn fremur sérstaklega til mismunandi kynslóða á vinnumarkaði í svörum sínum til umsækjandans en aðila greindi á um það hvort með því hafi verið vísað til aldurs lögreglumannsins.
„Að öllu þessu virtu telst mat kærða [lögreglustjórans] á þessari kröfu hvorki málefnalegt né forsvaranlegt. Verður því fallist á með kæranda að hann hafi leitt líkur að því að aldur hafi haft áhrif á þá ákvörðun að bjóða honum ekki til síðara viðtals um starfið og þar með hafi hann verið útilokaður frá umsóknarferlinu,“ segir í úrskurðinum.