Borgarverk átti lægsta boð í verkið upp á liðlega 2,5 milljarða króna. Tilboð þess var 87 prósent af kostnaðaráætlun, sem var upp á rétt rúma 2,9 milljarða króna. Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, og Atli Þór Jóhannesson, framkvæmdarstjóri Borgarverks, undirrituðu verksamninginn í gær.
Nýja Þjórsárbrúin verður 204 metra löng tvíbreið stálbitabrú. Hún kemur yfir fljótið um kílómetra ofan við Búðafoss, milli jarðanna Minna-Hofs og Vindáss. Brúin mun þvera ána á svokölluðu Hofsvaði.
Hinn nýi Búðafossvegur mun liggja frá Þjórsárdalsvegi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi að Landvegi í Rangárþingi ytra og verða 7,4 kílómetra langur. Nýtt hringtorg verður gert við þorpið Árnes á gatnamótum Þjórsárdalsvegar og Búðafossvegar. Þá verða lagðir tengivegir og heimreiðar á fjórum stöðum, samtals um 2,6 kílómetrar.
Í frétt Stöðvar 2 í nóvember 2024, þegar búist var við því að stutt væri í útboð, var sýnt myndband Vegagerðarinnar af útliti mannvirkjanna og staðsetningu þeirra:
Í verkinu felst einnig uppsetning tveggja reiðganga úr stálplötum, ræsa og búfjárganga, auk girðinga, ristarhliða, ljósastaura og annars vegbúnaðar, samkvæmt tilkynningu Vegagerðarinnar.
Brúarsmíðin og vegagerðin tengjast gerð Hvammsvirkjunar. Samkomulag gerir ráð fyrir að Landsvirkjun greiði 40 prósent kostnaðar en Vegagerðin 60 prósent.
Íbúar uppsveita Suðurlands hafa lengið beðið eftir þessum framkvæmdum enda boða þær einhverja mestu samgöngubyltingu sunnanlands um áratugaskeið. Dæmi eru um að leiðir milli einstakra byggða í Árnes- og Rangárþingi styttist um yfir fimmtíu kílómetra. Þá mun leiðin frá Árnesi að Landvegamótum styttast um fjórtán kílómetra. Vegagerðin segir áætlanir gera ráð fyrir að umferð um nýjan Búðafossveg verði um 500 ökutæki á dag.
Kærumál vegna Hvammsvirkjunar hafa hindrað framkvæmdir árum saman. Sumarið 2009 vonuðust sunnlenskir ráðamenn eftir útboðinu þá um haustið, eins og rifja má upp í þessari sautján ára gömlu frétt Stöðvar 2: