Inga Sæland gegn skólaklámi

Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra var illa brugðið þegar henni voru sýnd dæmi um kynfræðslu í leik- og grunnskólum sem voru meira í ætt við klám en fræðslu. Samkvæmt frétt Nútímans hyggst Inga uppræta klámvæðingu skólanna.
Trúlega munu margir foreldrar kunna Ingu bestu þakkir, gangi hún rösklega fram í þrifnaðarverkefni. En Ingu mun mæta herskátt óformlegt bandalag transara, sem oftast koma fram undir nafni, og perverta sem (skiljanlega) hylja nafn og númer.
Stutta sagan af klámvæðingu leik- og grunnskóla er að fyrir hálfum öðrum áratug eða svo vaknar transáhugi hér á landi með félagslegu smiti frá útlöndum. Fullorðið fólk, iðulega tæpt á geði, fer að ímynda sér að það sé í röngum líkama og heldur á lofti firru um að meðvitundin geti verið af einu kyni en líkaminn öðru. Líffræðilegur og röklegur ómöguleiki er að líkami og meðvitund einstaklings séu af andstæðu kyni. Trúfrelsi er í landinu. Fólk má halda fram hvaða fáránleika sem vera skal í nafni persónulegrar sannfæringar. Þar með er ekki sagt að lífskoðunarfélög eigi að fá aðgang að skólastarfi.
Samtökin 78 stukku á transið til að auka vægi sitt í samfélaginu. Upphaflega voru samtökin stofnuð til að berjast fyrir rétti samkynhneigðra. Með transi, BDSM og fleiri kynlegum undirdeildum urðu Samtökin 78 lífsskoðunarfélag, regnhlífarsamtök kynlegra sérvitringa.
Samtökin 78 eru með samstarfssamninga við flest stærri sveitarfélög um aðkomu að leik- og grunnskólum. Innflæði á námsefni og ,,sérfræðingum“ samtakanna hefur breytt hlutlægri og málefnalegri fræðslu í áróður fyrir lífsskoðun með samheitið hinsegin. Klámið flýtur með, sbr. óformlega bandalagið við perverta.
Í vor steig fram faðir barns í Vesturbæjarskóla sem baðst undan hinseginfræðslu fyrir barnið sitt. Skólastjórnendur nánast hótuðu að senda barnavernd á manninn. Faðirinn yfirvegunin uppmáluð benti á grjótharðar staðreyndir:
þær kenningar sem kynfræðslan í Vesturbæjarskóla byggja á eru hvorki byggðar á hlutlægum veruleika né vísindalegri þekkingu. Nær væri að tala um veraldleg trúarbrögð.
Ég tel, í sem fæstum orðum, að kynfræðslan í Vesturbæjarskóla sé barninu hættuleg og til þess fallin að rugla það ríminu og valda skaða á sjálfsmynd barnsins. Börn vita ósköp vel að kynin eru tvö. Jón fyrir hádegi getur ekki verið Guðrún eftir hádegi. Nema í hlutverkaleik. Ábyrgðarhluti er að opinber menntastofnun kyndi undir óreiðu í barnshuga.
Fyrir þrem árum var töluverð umræða í samfélaginu um klámvæðingu kynfræðslu. Svar embættismanns Reykjavíkurborgar var efnislega að skólaklámið væri til að vega á móti klámi utan skólans. Það er álíka og að halda bjór að börnum til að stemma stigu við áfengisneyslu utan skólatíma.
Tilfallandi tók þátt í umræðunni fyrir þrem árum. Samtökin 78 kærðu til lögreglu sem skrifaði út ákæru fyrir lífsskoðunarfélagið og dró bloggara fyrir dóm.
Samtökin 78 líta svo á að andmæli við starfsemi þeirra í leik- og grunnskólum jafngildi hatursorðræðu. Lífsskoðunarfélagið hefur engin haldbær rök fyrir bábiljum um kynjavíxl meðvitundnar og líkama. Sé að gætt býr hatrið í huga fólks sem kann ekki skil á einföldustu staðreyndum mannlífsins, að kynin eru tvö og enginn fæðist í röngu kyni. Hatur og fáfræði haldast gjarnan í hendur.
Ætli Inga Sæland sér að uppræta klámvæðingu skólastarfs er fyrsta skrefið að úthýsa Samtökunum 78 úr skólum landsins.