Arnarskjöldur vill að skemmtistaðir bjóði gestum drykkjarlok

Forvarnarverkefnið Arnarskjöldur vill að barir, veitingahús, hótel og viðburðahaldarar hafi öryggislok tiltæk fyrir bæði áfenga og óáfenga drykki. Einar Örn Ásdísarson, stofnandi verkefnisins, segir að erindi þess efnis hafi verið send atvinnuvegaráðuneytinu og allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis 9. nóvember.
Í erindunum var að sögn Einars óskað eftir að skoðaðar yrðu breytingar á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald eða reglugerðum á því sviði. Einnig var óskað eftir samráði, kynningarfundi og skriflegri staðfestingu á móttöku. Málið er á tillögustigi.
Gestir ráði sjálfir hvort þeir þiggja lok
Tillagan gengur út á að gestir fái skýrar upplýsingar um að lok séu í boði og ráði sjálfir hvort þeir þiggja þau. Starfsfólk fái grunnfræðslu um byrlun og viðbrögð við grun um að átt hafi verið við drykk. Þá verði sett almenn viðmið um öryggi, hreinlæti og notagildi sem ólíkir framleiðendur geti uppfyllt.
Einar segist þekkja fólk sem hefur orðið fyrir byrlun í drykki og að reynsla þess hafi orðið honum hvatning til að stofna Arnarskjöld. Hann lýsir drykkjarlokunum sem viðbótarvörn og leggur áherslu á að gestir geti leitað strax til starfsfólks ef þeim líður skyndilega illa eða grunar að átt hafi verið við drykkinn.
Að sögn Einars hefur verið opnuð undirskriftasöfnun til stuðnings tillögunni. Undirskriftasöfnun Arnarskjaldar á Ísland.is.
Undirbúa fræðslu og dagatöl á Selfossi
Arnarskjöldur er verkefni á vegum Arnarfjaðrar ehf. Samkvæmt kynningargögnum er stefnt að fræðsluerindum og sýnikennslu í samstarfi við fyrirtæki og viðburðahaldara. Á Selfossi er jafnframt unnið að vegg- og borðdagatölum fyrir árið 2027 með forvarnarfræðslu og QR-kóðum. Dagatölin og fyrirhuguð verkefni með Bumbubolta Selfoss eiga að styðja við fjármögnun starfsins.
Einar segir að hann hafi rætt verkefnið við Sæbjörgu Erlu Gunnarsdóttur, blaðamann Dagskrárinnar, á Selfossi 12. nóvember. Þar ræddi hann einnig reynslu sína af langvarandi verkjum eftir að hann missti hægri handlegg í slysi á Spáni árið 2017 og áframhaldandi leit sína að sérhæfðu mati. Fréttin birti frásögn hans af þeirri leit í september 2025. Fyrri umfjöllun má lesa hér.
