Í hraðaleiknum Hvor er ódýrari? birtast tveir verðmiðar í einu. Þú velur lægra verðið með því að smella eða snerta skjáinn. Eftir sextán stuttar umferðir geturðu skoðað eigin viðbragðstíma. Leikurinn tekur um mínútu.
Það er eitt að sjá í fljótu bragði hvor pokinn er ódýrari. En hversu miklu ódýrari finnst þér hann vera? Í báðum dæmunum munar tólf krónum. Í tilraunum hefur fólki þótt sami verðmunur meiri þegar tölustafurinn lengst til vinstri breytist. Þetta kallast vinstritölubjagi (e. left-digit bias).
Í Vísindum á Vísi með VAL (Vísindarannsókn Háskóla Íslands) er fjallað er um vísindin í daglegu lífi.
Segjum að þú ætlir að selja bílinn þinn. Á leiðinni að hitta kaupandann sérðu kílómetramælinn fara úr 79.999 í 80.000. Hefði kannski borgað sig að biðja kaupandann að koma til þín?
Vísindamenn skoðuðu rúmlega 22 milljónir viðskipta með notaða bíla á bandarískum heildsöluuppboðum. Þar sýnir mælirinn mílur. Bílar sem höfðu farið rétt undir 80.000 mílur seldust að jafnaði á um 210 dölum hærra verði en bílar rétt yfir mörkunum. Við 79.900 mílur munaði hins vegar aðeins tíu dölum á meðalverði bílanna rétt undir og rétt yfir markinu.
Rannsakendurnir litu líka yfir landamærin til Kanada. Þar sýna mælarnir kílómetra, eins og hér heima. Og þar tók verðið dýfu á tíu þúsund kílómetra fresti. Bílvélin veit væntanlega lítið um það hvort mælirinn telur í mílum eða kílómetrum.
Tíkall til baka
Næst þegar þú sérð bol á 1.990 krónur geturðu prófað að lesa verðið upphátt á annan hátt. „Tveir þúsundkallar og ég fæ tíkall til baka.“ Hvernig líst þér á kaupin núna?
Vinstritölubjaginn á við mun víðar en í viðskiptum. Hvort finnst þér stærra stökk í meðaleinkunn skóla, úr 6,0 í 6,9 eða úr 6,9 í 7,0? Í danskri tilraun var fólk beðið að meta frammistöðu skóla út frá einni meðaleinkunn. Það réðst af handahófi hvaða tölu hver sá. Lítill munur var á mati þeirra sem sáu 6,0 og þeirra sem sáu 6,9. En þeir sem sáu 7,0 gáfu skólanum að meðaltali tæpum tíu stigum meira á hundrað stiga kvarða en þeir sem sáu 6,9.
Hraðaleikurinn hér að ofan er hluti af vísindamiðlun VAL við Háskóla Íslands. Hann er ekki rannsóknin sjálf. Við gerðum hann til gamans svo þú getir kynnst vinstritölubjaga og séð hvort þinn eigin viðbragðstíminn breyttist þegar verðin byrjuðu á ólíkum tölustöfum. Við vonum að þú aðstoðir okkur líka með því að taka þátt í rannsókninni VAL.
Kynntu þér rannsóknina og taktu þátt á val.hi.is.
Heimildir
Í Vísindum á Vísi með VAL (Vísindarannsókn Háskóla Íslands) er fjallað er um vísindin í daglegu lífi.