Tengdasonur Íslands gerist í miðri síðari heimsstyrjöldinni þar sem unga vísindamanninum Zakaríasi skolar á land hérlendis. Hann talar fjölmörg tungumál, er með áhuga á skordýrum, villtum plöntum, fuglum og fjallgöngum og er blóðafi sögumanns, doktorsnema í mannerfðafræði sem býr með 103 ára ömmu sinni.
Auður Ava sagði gestum frá bókinni og las upp úr henni auk þess sem popptvíeykið Milkywhale steig á stokk og spilaði fyrir gesti. Dóttir Auðar, Melkorka Sigríður Magnúsdóttir, er einmitt annar helmingur tvíeykisins.
Sigurjón Ragnar fangaði stemminguna á mynd.