Ef þessi uppskrift frá hinu fræga veitingahúsi Fallow, er ekki að heimsins bestu kjúklingabitum, þá veit ég ekki hvað… Ég er ekki mikill aðdáandi kjúklingalæra, vil fremur nota bringurnar og lundirnar, en þetta var meiri háttar gott. Að vísu varði ég a.m.k. klukkutíma við nostrið sem það kostaði að skera himnurnar af kjúklingalöppunum.
Næst þegar ég geri þessa uppskrift ætla ég einfaldlega að nota kjúklingalundir. Fallow strákarnir nota MIKLU meiri pipar og krydd en ég; þetta er mín “lagfærða” uppskrift, þar sem á mínu heimili eru magar sem ekki þola svona mikinn hita. Ef þið viljið meiri hita, þá bara allt eftir smekk. (PS. Ég bar þá líka fram með – ekki bara sriracha-huangssósunni, heldur líka íslenskri majósósu – hvað er líf án kokkteilsósu? Not worth living – majones, sriracha sósa, smá toasted sesame olía og skvetta af sítrónusafa.
Þið getið bara tekið nokkrar matskeiðar af Gunnars kokkteilsósu (yum, ekki svo heppin að hafa Gunnars í Ameríku), bætt tsk eða 2 af ristaðri sesameolíu og skvettu af sítrónusafa. Hef ekki farið í búðir á Íslandi í nokkra mánuði, svo veit ekki hvaða sriracha sósur eru fáanlegar. En mín uppáhalds sriracha sósa er Yellow Bird Agave sriracha sósa. Ég notaði grænmetisolíu (vegetable oil) til að djúpsteikja bitana). Hérna er mín útgáfa af þessum frábæru kjúklingabitum:
Fyrir 4
Kjúklingur og marinering

-
12 kjúklingalæri
-
½ bolli sriracha-sósa (helst Yellow-bird Blue Agave sriracha)
-
½ bolli vatn
-
2 tsk. salt
Blaut blanda
-
¼ bolli plús 2 msk súrmjólk
-
¼ bolli plús 2 msk sódavatn
-
3 ½ msk. kartöflu- eða maísmjöl (cornstarch)
Þurr hjúpblanda
-
2 bollar hveiti
- ½ – 1 tsk. sjávarsalt
-
½ bolli kartöflumjöl
-
1 tsk. lyftiduft
-
1 msk. MSG (mónósodium glutamate “Accent” ég notaði ekki, en er í upprunalegu uppskriftinni
-
½ – 1 tsk. fíntmalaðu hvítur pipar
-
½ – 1 tsk. fíntmalaður svartur pipar
-
2 tsk. laukduft
-
2 tsk. hvítlauksduft
-
1-2 tsk. cayennepipar
Sriracha-hunang
-
½ bolli hunang
-
2 msk. Yellow Bird Agave sriracha-sósa
-
Ögn af salti
Aðferð
-
Flettið lærin út, skerið í tvennt eftir endilöngu og skerið nokkrar grunnar rákir í hvora hlið.
-
Hrærið sriracha-sósu, vatni og salti saman í skál. Setjið kjúklingakjötið í þannig að marineringin hylji þá. Hyljið skálina og setjið í kæli yfir nótt.
-
Þeytið súrmjólkina og maís/kartöflumjölið saman þar til blandan er kekkjalaus. Hrærið sódavatninu saman við. Blandið öllu hráefninu í þurra hjúpinn saman í annarri skál.
-
Takið kjúklingabitana úr marineringunni og látið drjúpa af þeim í nokkrar sekúndur. Veltið hverjum bita 60 sinnum (veit nú ekki alveg, en whatever… 60 sinnum skal það vera…) upp úr þurru blöndunni.
-
Dýfið hverjum bita í blautu blönduna, færið hann aftur yfir í þurru blönduna og veltið honum þar 60 sinnum í viðbót (OK, 60 sinnum…)
-
Hitið olíu á pönnu í 180 °C. Steikið bitana þar til þeir eru gullinbrúnir og kjarnhitinn hefur náð 68 °C.
-
Hitið hunangið í litlum potti eða örbylgjuofni og þeytið sriracha-sósunni saman við. Smakkið til með salti og svörtum pipar og berið fram með kjúklingabitunum.
Uppskrift: Íris Erlingsdóttir