Síðdegis í gær mátti víða sjá bíl við bíl á helstu stofnæðum á höfuðborgarsvæðinu en ástæðan voru malbikunarframkvæmdir þar sem rampur af Bústaðavegi niður á Hafnarfjarðarveg í suður í átt að Kópavogi var lokaður. Í dag voru sömuleiðis fyrirhugaðar malbiksframkvæmdir á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Laugavegar og aftur á Bústaðaveg en sökum fyrstu snjókomu vetursins á höfuðborgarsvæðinu var þeim framkvæmdum slegið á frest.
Höfuðborgarbúar fóru mikinn á samfélagsmiðlinum Tik-Tok vegna umferðartafanna í gær.
Árni Friðleifsson aðstoðaryfirlögregluþjónn umferðardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir ljóst að framkvæmdum hafi verið um að kenna en auk þess hafi afsláttardagurinn Singles Day líklega aukið á umferðina.
„Þannig við sáum það alveg að það voru mjög margir á ferðinni í kringum verslunarkjarna og svo hafði þessi lokun rampsins inn á Kringlumýrarbraut til suðurs frá Bústaðavegi mjög mikið að segja og það gefur augaleið að þegar þessum akreinum er lokað þá bara myndast stífla og við höfum oft talað um svona gormaáhrif. Þetta hefur áhrif eiginlega bara á öllu höfuðborgarsvæðinu þegar það er lokað í langan tíma en Vegagerðin er veghaldari og við vísum á Vegagerðina í þessu máli.“
Hvernig gekk þetta í gær, hvernig var þolinmæðin og urðu einhver slys á fólki?
„Nei, það er nú oftast þannig að þegar umferðin er svona þung þá er hún náttúrulega mjög hæg og þá verða engin umferðarslys og lítið af umferðaróhöppum þannig að heilt yfir gekk sá hluti mjög vel og við erum mjög sáttir með að við höfum ekki verið með þannig mál. En engu að síður fann maður það alveg að þolinmæði ökumanna minnkaði með hverjum hálftíma sem leið.“
Það hefur ekkert sést á aksturslagi?
„Nei nei en við vorum að heyra það að menn væru að fara inn á einhver bílastæði og skilja bílana eftir og hreinlega bara labba einhvern spöl sem þeir þurftu að fara eða leiga sér rafhlaupahjól og fara fram úr umferðinni svoleiðis. En heilt yfir gekk þetta en við heyrðum að fólk var mjög lengi á leiðum sem annars taka ekki langan tíma.“
Biðlar til ökumanna að fara varlega í snjókomunni
Árni segir að morgunumferðin í dag hafi gengið vel þrátt fyrir snjókomu. Tilkynnt var um eitt slys í morgun þar sem bíll fór út af vegi vegna hálku. Árni segir lögreglu fylgjast vel með stöðunni, byrjað hafi verið að hálkuverja helstu stofnæðar snemma í morgun.
„Ef veðrið verður til friðs að þá ætti ástandið í síðdegisumferðinni að verða betra en í gær en við búum hérna á Íslandi og veðrið spilar stóran þátt í okkar lífi þannig að ef það heldur áfram að snjóa hérna á höfuðborgarsvæðinu þá gæti náttúrulega myndast erfið akstursskilyrði og við verðum að taka tillit til þess.“
Ökumenn bæði á bílum og á öðrum fararkostum líkt og reiðhjólum virðist hafa verið vel búnir undir veturinn. Árni biðlar til fólks um að fara varlega. Aukin hlýindi og rigning er í kortunum á höfuðborgarsvæðinu síðdegis í dag.