Í yfirlýsingu bæjarstjórnar segir að niðurstaða íbúafundar í Gjánni í gærkvöldi hafi verið afdráttarlaus.
„Grindvíkingar treysta ekki stjórn og stjórnendum Fasteignafélagsins Þórkötlu og hafna endurkaupaáætlun félagsins í núverandi mynd. Þeim finnst félagið hvorki hlusta á Grindvíkinga né skilja aðstæður þeirra. Eftir þrjú ár af strjálum samskiptum og einhliða ákvörðunum Fasteignafélagsins Þórkötlu treysta þeir ekki félaginu.“
Áætlunin beri þess merki að stjórnendur Fasteignafélagsins Þórkötlu skorti skilning á verkefninu og raunverulegum aðstæðum Grindvíkinga. Tímasetningin henti ekki fjölskyldum, kaupverðið taki ekki mið af ástandi fasteigna og áhættan hvíli á þeim sem fyrstir koma heim.
Grindvíkingar séu ekki að biðja um ölmusu og vilji ekkert frítt. Þeir vilji að hlustað sé á sjónarmið þeirra en það hafi Fasteignafélagið Þórkatla ekki gert nema að litlu leyti.
Uppkaupin hafi verið björgunaraðgerð í miðjum náttúruhamförum og endurkaupaáætlunin eigi að vera mikilvægt skref í þeirri aðgerð. Samkvæmt lögum sé markmiðið að verja fjárhag og velferð íbúa í Grindavík. Fyrirliggjandi áætlun Fasteignafélagsins Þórkötlu virði það markmið að vettugi.
„Bæjarstjórn skorar á stjórn og stjórnendur Fasteignafélagsins Þórkötlu að hlusta á sjónarmið Grindvíkinga og endurskoða áætlunina í samstarfi við þá. Grindavík verður ekki byggð upp án Grindvíkinga.“